Erum semsagt komin til Íslands og erum að vera búin að koma okkur fyrir í Eyjum. Þó svo við séum búin að vera í Norrænu í einhverja mánuði (samkvæmt fyrri færslu).
KV
JOSI
Jæja nú erum við fjölskyldan farin frá Svíþjóð og á leið til Íslands. Það er búið að vera mikið að gera síðustu daga í að pakka, ganga frá og koma búslóðinni í gám. Síðustu daga erum við búin að eyða í Legolandi (Billund) þar sem Tóti og Karitas skemmtu sér konunglega. Farið var í flest öll tæki við mis mikla gleði Karitasar en Tóti var samt mest ánægður með að nú væri hann orðinn nógu stór þannig að hann mátti fara í öll tækin. Nú í þessum töluðu örðum sitjum við í Norrænu og erum á leið til Færeyja. Það er smá sjór (ekki mikill bara smá hreyfing) þannig að Anna ákvað að lyggja fyrir við hræðslu við að verða sjóveik.
Læt þetta duga í bili.
Kveðja
JOSI
Jæja nú er búið að samþykkja masters ritgerðina mína og nú á bara efitr að ganga frá skilunum. Hér er búið að vera nóg að gera í Svíaríki við erum búin að vera að pakka á fullu ásamt því að ég er búinn að vera að stytta Bs ritgerðina mína niður í 8 síður þar sem Prófessor í háskóla í Berlín vildi að ég myndi senda hana inn á ráðstrefnu í Berlín. Þannig að hér er bara allt á fullu, Ída (kötturinn) fór til Íslands þann 27 maí með ömmu Gunnu og er búin að vera í einangrun í góður yfirlæti í Hrísey. Hún er væntanleg til Eyja þann 24 júní þar sem Afi Tóti og Amma Gunna ættla að passa hana þar til að við komum til Eyja þann 10 júlí.
Keðja
JOSI
Jæja það er nú búið að vera nóg að gera í dag ég er búinn að verja masters ritgerðina mína og nú er bar að laga það littla sem sett var útá. Gunnlaugur Jónson (Malmöbúi) er búinn að vera með einhvern derring hérna í athugasemdunum í fyrri færslu um að við blogguðum ekki nóg. Gulli minn nú er ég búin að blogg og ég lofa þér stuttum póstum í hverri viku þar til við erum komin til Íslands, maður vill nú ekki hafna í „minna aktívir“ á gulli.net
Kveðja,
JOSI
Hugsa sér – nú eru liðin heil þrjú ár frá því að litla prinsessan okkar leit dagsins ljós, í fyrsta skipti. Auðvitað munum við foreldrarnir daginn eins og hann hafi gerst í gær – enda mikill hamingjudagur í lífi okkar!
Elsku litla fallega stúlkan okkar -
Innilega til hamingju með 3ja ára afmælið þitt!
Elskum þig svo mikið!
Þúsund afmæliskossar og knús,
mamma, pabbi og Tóti
Síðastliðnar 2 vikur hafa verið heldurbetur skemtilegar. Við fengum heimsók þann 27 febrúar en þá kom amma Gunna til okkar. Bæði Tóti og Karitas voru veik allan tímann þannig að ekki var mikið gert annað en að hlúa að þeim. En þessi tími var góður þarsem Anna og amma Gunna voru á fullu í prjónaskap þess á milli sem moppan var tekin upp til að þrífa upp gubb. Það var samt mjög gott að hafa ömmu Gunnu þar sem ekki veitti af hjálpinni þar sem systkinin þurftu mikla athygli og mikið var að gera hjá Josa við lærdóminn.
Látum þetta nægja í bili.
Fjölskyldan á Solskensvägen 9.
Elsku besti Jósi okkar -
Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!
Mikið er nú gott að þú sért líka kominn á fertugsaldurinn – mohahhahahhaha!
Vonum að þú eigir góðan dag – rmunum gera allt sem í okkar valdi stendur svo af því verði!
Þúsund afmæliskossar og knús,
Anna, Tóti og Karitas
Jæja þá er það orðið að veruleika ég (ungmennið) er með konu á fertugsaldrinum………
Innilega til hamingju með daginn elsku Anna okkar – bara orðinn 30 ára gömul!
Elskum þig!
JOSI & börnin
Hugsa sér að það séu liðin heil 8 ár frá því að hann Tóti okkar fæddist – og mér finnst bara eins og það hafi bara gerst í gær. Mun aldrei gleyma því þegar ég sá hann í fyrsta skipti… og ennþá síður því þegar ég fékk hann í fangið í fyrsta skipti.
Að venju var töffarinn vakinn með afmælissöng og kossum í morgun – og þar næst var svo haldið inn í eldhús í pakkaopnun. Hann minnist þess á hverju ári, og reyndar oftar en einu sinni, að hann sé fæddur á sama degi og Elvis Presley. Hann er voðalega stoltur af því – enda finnst honum bæði Elvis og lögin hans alveg æðisleg! Held að hann sé Elvis fan nr. 2 – þar sem afi Tóti er nr. 1.
Tótalingurinn var mjög þakklátur fyrir allar fallegu gjafirnar sem hann fékk.
Fyrsti skóladagurinn, eftir jólafrí, er í dag og honum fannst nú ekki leiðinlegt að eiga afmæli á þeim degi. Hann fór með ís í skólann – og ætlar að bjóða krökkunum upp á eftir fyrri frímínúturnar. Alltaf voðalega vinsælt að fara með eitthvað góðgæti til að bjóða uppá – og gera skóladaginn ennþá skemmtilegri.
****
Elsku Tótalingurinn okkar…
Innilega til hamingju með 8 ára afmælið þitt – stóri, góði og fallegi strákurinn okkar!
Afmæliskveðjur,
mamma, pabbi og Karitas
****
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili…
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « des. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||