JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Færslur fyrir maí, 2004

Sól og enn meiri sól!

Það var rosalegt verður í dag – er sumarið ekki bara komið? Við fórum snemma út og nutum sólarinnar. Við Jóhann erum bara þó nokkuð rauð eftir daginn … Tóti er í mjög góðum málum þar sem við smyrjum vel á hann sólaráburði – en svo gleymum við okkur sjálfum! Þvílíkir trúðar! Seinni partinn fórum [...]

Vatnsslöngu-ævintýrið mikla!

Það var alveg rosalega gott veður í dag! Við byrjuðum daginn snemma eins og við gerðum í gær. Jóhann sat úti og lærði undir prófið á meðan ég þreif beðin í bakgarðinum. Nú er garðurinn loksins að verða þó nokkuð góður. Tóti var svo ánægður þegar við fórum út í morgun – hann er svo [...]

Alltaf gaman í góðu veðri!

Hejsan! Það var mjög góður dagur í dag – kringum 20 stiga hiti en hálfskýjað. Það varð frekar þungbúið seinni partinn.Við fjölskyldan byrjuðum daginn nokkuð snemma – enda frábært veður! Ég fór að ganga aðeins frá í garðinum, hélt áfram þar sem frá var horfið í gær. Það er svo gott og gaman þegar árangur [...]

Sumar og sól!

Hejsan! Hér á Solskensvägen 9 eru allir hressir og kátir. Við erum bara að vona að sumarið sé komið hérna í Svíþjóð – spáin fer að minnsta kosti batnandi. Hér var í kringum 18 stiga hiti í dag, þó nokkur sól og næstum því logn – frábært veður til að vinna úti í garði. Við [...]

Jæja þá er þessi síða komin upp :)

Síðustu tveir dagar eru búnir að ver frekar erfiðir hjá okkur strákunum við erum búnir að vera að smíða róbót sem að spilar Game boy advanced tölvuleik sem við smíðuðum, en pong varð fyrir valinu. Við erum búnir að vera 3 félagar (ég, Gulli og Kristjón) að gera þetta og hefur þetta tekið á taugarnar [...]

Þrumur og haglél!

Héðan frá Skövde er bara allt gott að frétta – allir hressir og kátir! Veðrið hér er reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir – aðeins í kringum 11 stiga hiti. Þrátt fyrir frekar lágt hitastig var veðrið nokkurn vegin í samræmi við árstíma, þ.e. þrumur og eldingar. Venjulega fylgir þrumum og eldingum þó nokkur [...]

Byrjuð að halda vefdagbók (Blogga)!

Jæja, þá erum við litla fjölskyldan í Svíþjóð byrjuð að "blogga"; réttara sagt að halda vefdagbók. Vonandi verðum við dugleg að halda þessari síðu við og þar með að skrifa reglulega í vefdagbókina. Á þessari síðu er "linkur" á heimasíðuna hans Tóta litla. "Linkurinn" kallast Heimasíða Tóta. Við erum að vinna í nýrri síðu fyrir [...]

 

maí 2004
Þ Mi Fi L S
    júní »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

Switch to our mobile site