JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Færslur fyrir október, 2008

Gleðilega hrekkjavöku!

Gleðilega hrekkjavöku kæru vinir – mohahahhahhaahaaaa! Hér í Sverige er hrekkjavakan í algleymingi og við mæðginin skelltum okkur auðvitað út í stuttan göngutúr. Tóti var afar duglegur að dingla á dyrabjöllum í hverfinu og segja: „bus eller godis!“. Hann þurfti ekki að gera neinn grikk – heldur bættist alltaf bara meira nammi í pokann hans. [...]

U2 Beautiful Day live í Slane Castle 2001

Fann þetta myndband og bara varð að setja það inn þar sem ég og Anna vorum þarna líka. Þvílíkar minningar!!

Vetrartími

Nú er kominn vetrartími hjá okkur í Svíþjóð, og auðvitað í fleiri löndum. Nú í morgun færðum við klukkuna aftur um eina klukkustund. Nú er sem sagt bara eins tíma munur á Svíþjóð og Íslandi, sem er bara hið besta mál. Mér finnst nefnilega muna alveg ótrúlega miklu um þessa einu klukkustund. Það er bara [...]

Diskókúla?

Nei, ég segi nú bara svona… Málið er að Karitas fékk þá stæðstu kúlu, á ennið, sem ég hef séð og svo er diskó í skólanum hjá Tóta. Ákvað bara að skella þessu saman og fékk þá út þetta skemmtilega orð: diskókúla! Dóttir mín hafði einungis náð að vera á leikskólanum í tvær klukkustundir þegar [...]

Rafmagnslaust!

Jæja, þá er kominn sá tími ársins þegar rafmagnsleysin byrja að gera vart við sig… og í þessum skrifuðu orðum stendur það fyrsta yfir! Nú sitjum við hjónin umvafin kertum og höfum það voðalega notalegt saman! Ég sit og blogga á meðan Jósi fær sér einn kaldan. Þar sem maðurinn minn er kominn með gott [...]

Aðgerð og BS í tölvunarfræði

Komið öll blessuð og sæl. Nú er bloggið búið að vera í smá hvíld… og við skulum vona að það komist aftur á gott skrið! Amma Gunna kíkti í heimsókn til okkar þann 10. október síðastliðinn. Hún kom til okkar á sjálfan afmælisdaginn sinn – svo við ákváðum að bjóða henni upp á humar. Alltaf [...]

Til hamingju með daginn í gær amma Gunna

Elsku amma Gunna … Innilega til hamingju með daginn í gær! Vonum að dvölin hjá okkur í Svíþjóð verði góð. Ástarkveðja – kossar og knús, Anna, Jósi, Tóti og Karitas Guðrún

Helgin búin!

Nú er helginni að ljúka og ný skólavika tekur við… Helgin okkar er búin að vera voðalega róleg og notaleg. Við erum búin að njóta þess að hvíla okkur en svo höfum við líka verið talsvert utandyra. Hérna er búið að vera alveg tíbískt haustveður en það hefur ekki stoppað krakkana frá því að vilja [...]

 

október 2008
Þ Mi Fi L S
« sept.   nóv. »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Switch to our mobile site