Gleðilega hrekkjavöku kæru vinir – mohahahhahhaahaaaa! Hér í Sverige er hrekkjavakan í algleymingi og við mæðginin skelltum okkur auðvitað út í stuttan göngutúr. Tóti var afar duglegur að dingla á dyrabjöllum í hverfinu og segja: „bus eller godis!“. Hann þurfti ekki að gera neinn grikk – heldur bættist alltaf bara meira nammi í pokann hans. [...]