JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Þrumur og haglél!

Skrifað af Anna þann 25. maí 2004

Héðan frá Skövde er bara allt gott að frétta – allir hressir og kátir! [;)]

Veðrið hér er reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir – aðeins í kringum 11 stiga hiti. Þrátt fyrir frekar lágt hitastig var veðrið nokkurn vegin í samræmi við árstíma, þ.e. þrumur og eldingar. Venjulega fylgir þrumum og eldingum þó nokkur rigning en í dag kom haglél í staðin – og það ekki bara einu sinni heldur tvisvar sinnum. Alveg ótrúlegt! Brrrrr …

Tóti er orðinn svo sænskur að hann er meira að segja farinn að tala íslensku með sænskum hreim og hrynjanda. Hann tala sænsku þegar hann er að leika sér og líka upp úr svefni, þetta hlýtur að merkja aðeins eitt og það er að hann er farinn að hugsa á sænsku.
Það er svo sætt að heyra hann tala sænskuna – sérstaklega þegar hann er bara einn að leika sér í herberginu sínu. Við erum búin að vera nokkrum sinnum vitni að því þegar hann er að tala upp úr svefni. Við höfum oftast látið hann alveg vera en við höfum líka prófað að tala við hann og spurt hann spurninga á meðan á þessu stendur og hann hefur svarað okkur á sænsku – það er svo krúttlegt! [:D]

Jóhann er á fullu að vinna stórt verkefni fyrir skólann og þegar því er lokið tekur við próflestur. Hann fer í síðasta prófið sitt þann 3. júní og eftir það er hann kominn í sumarfrí. Tóti byrjar í sumarfríi þann 1. júní og ætlunin er að gera eitthvað skemmtilegt saman þegar Jóhann er búinn í prófinu sínu. Vá, hvað það verður gaman þegar við erum öll komin í sumarfrí!

Jæja, ég læt þetta duga í bili!

Kossar og knús,
Anna [:)]

Senda á Facebook:
  • Facebook

Skilja eftir athugasemd

 

maí 2004
Þ Mi Fi L S
    júní »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

Switch to our mobile site