Byrjuð að halda vefdagbók (Blogga)!
Jæja, þá erum við litla fjölskyldan í Svíþjóð byrjuð að "blogga"; réttara sagt að halda vefdagbók.
Vonandi verðum við dugleg að halda þessari síðu við og þar með að skrifa reglulega í vefdagbókina.
Á þessari síðu er "linkur" á heimasíðuna hans Tóta litla. "Linkurinn" kallast Heimasíða Tóta. Við erum að vinna í nýrri síðu fyrir hann – en það verður bara að koma í ljós hversu fljót við verðum að klára hana. Við verðum að láta þessa heimasíðu duga í bili. Held að hún sé bara alveg ágæt en Jóhann vill gera heimasíðu sem betra er að uppfæra – og það er náttúrulega ekki slæmt! ![[:cool:]](/images/smile/smile22.gif)
Læt þetta duga í bili!
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)