JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

11 mánaða!

Skrifað af Anna þann 6. mars 2007

Elsku Karitas Guðrún okkar –

Innilega til hamingju með 11 mánaða afmælisdaginn. Eftir mánuð verður þú eins árs – hugsa sér!

Elskum þig svo mikið mikið! [:kiss:]

Kossar og knús,
Mamma, pabbi og Tóti

***

Karitas Guðrún fór í skoðun í dag og hún er orðin 70 cm. og 7.910 gr.
Hún hefur færst aðeins úr venjulegu kúrfunni sinni – upp á við. [:D]

***

Núna eru amma Gunna og afi Tóti í heimsókn hjá okkur – yndislegt að þið séuð loksins komin til okkar!
Þau komu til okkar í gær, 5. mars, og þá brunuðum við beinustu leið í IKEA, í Jönköping. Við fórum þangað til að kaupa alveg heilan helling af húsgögnum þar sem við erum að taka aðal baðherbergið í gegn og herbergið hans Tóta. Við komum út með alveg nýtt herbergi fyrir stóra strákinn okkar og rosalega fínar innréttingar inn á baðherbergið. Mikið hlakka ég til þegar við getum farið að setja hlutina á sína staði.

Ég leyfi ykkur að fylgjast með framvindu mála …

Hafið það sem allra best!

Kossar og knús,
Anna og co. [:)]

Senda á Facebook:
  • Facebook

Ein Athugasemd við “11 mánaða!”

  1. 1
    Kjartan Vídó:

    Fær Innlit útlit að fylgjast með feðgunum við þessar endurbætur?
    Bið að heilsa gamla settinu.

Skilja eftir athugasemd

 

mars 2007
Þ Mi Fi L S
« feb.   apríl »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  

Switch to our mobile site