Hversdagsleikinn …
Já, nú hefur hversdagsleikinn tekið við að nýju … sem er bara hið besta mál.
Verður voðalega gott að koma aftur rútínu á heimilið.
Ég tók niður jólin í gær – svo ég get sagt að það er ekki eftir sem búið er!
Ég er því laus og liðug í dag … eða a.m.k. laus og liðug í lærdóm! ![[:strano:]](/images/smile/smile13.gif)
Jóhann greyið er að fara í próf í dag – og er búinn að vera þvílíkt duglegur að læra. Hann hefur varla sést síðustu vikuna eða svo …
Gangi þér vel í prófinu! ![[:kiss:]](/images/smile/smile15.gif)
Frístundaheimilið og leikskólinn tóku við umsjá barnanna okkar í dag – og það var ekki hægt að sjá annað en að börnin væru bæði sæl og ánægð með að vera komin aftur þangað. Örugglega búin að fá alveg nóg af mömmu og pabba eftir langt jólafrí.
Tóti byrjar svo aftur í skólanum á morgun – á sjö ára afmælisdaginn sinn. Í dag ætlum við því að kaupa ís og blöðrur svo hann geti boðið bekknum sínum upp á eitthvað gotterí í tilefni dagsins.
Tóti greyið er búinn að bíða eftir að fá að halda alvöru bekkjarafmæli – og það verður því haldið stórt bekkjarafmæli hérna nk. sunnudag. Ég get lofað ykkur að það verður þvílíkt ´húllumhæ´ hérna – eða ég reikna a.m.k. með því …
Læt þetta duga í bili!
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Mánudagur 7. janúar 2008 klukkan 18:35:47
Ég veit ekki af hverju en ég efast einhvern veginn alltaf um duglegheitin hjá Jósa!