Slubb & slef ehf.
Hvað er þetta með hræðslu sænskra leikskólakennara við smá hor eða er það kannski eitthvað annað sem er að pirra þær?
Fóstrurnar hringdu í mig í gærmorgun og báðu mig að taka hana Karitas heim þar sem hún var ekki alveg hún sjálf. Þegar ég kom og sótti hana kom dóttir mín haupandi á móti mér með bros á vör. Ég gat ekki betur séð en það væri í góðu lagi með hana fyrir utan smá hor í nös. Hún lagði sig fljótlega eftir að við komum heim og var svo bara hin hressasta. Ég verð að viðurkenna að ég er bara svolítið sár út í fóstrurnar – mig grunar að þær séu að notað sér það að ég er heima að læra. Þær hafa kannski hugsað sér gott til glóðarinnar þar sem þær eru með tvo nýja stráka í aðlögun.
Ég ákvað að hafa hana heima í dag þar sem hún er ennþá með hor en er enn þokkalega hress. Ég tók þessa ákvörðun þar sem ég hefði örugglega fengið símhringingu þar sem hún er ekki alveg hún sjálf – og þar sem strákarnir eru líka ennþá í aðlöguninni.
Ég ætla að láta í mér heyra á morgun þegar ég fer með hana – því get ég lofað ykkur. Þær verða að skilja að það er ekki hægt að læra með svona hresst barn heima!
Fyrirgefið en ég varð bara að pústa smá … hef svo sem gert það áður og það bitnaði líka á ykkur. ![[:strano:]](/images/smile/smile13.gif)
****
Fyrir utan þetta er bara allt gott að frétta. Við áttum alveg voðalega fína helgi. Á laugardaginn skelltum við okkur til Gautaborgar á sýninguna Disney On Ice. Þetta var alveg rosalega skemmtileg sýning, sem sló í gegn bæði hjá börnum og fullorðnum. Á sunnudaginn buðum við svo bekknum hans Tóta til okkar. Afmælisveislan heppnaðist alveg rosalega vel og Tóti var þvílíkt hamingjusamur með daginn.
Þið getið séð myndir frá bæði Gautaborgarferðinni og afmælinu hans Tóta á heimasíðu barnannna – smellið hér.
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili …
Bestu kveðjur – kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Laugardagur 19. janúar 2008 klukkan 21:23:43
Það er ábyggilega erfiðara að hafa Jósa heima heldur en prinsesuna þína
Til hamingju með peyjann.
kv
Kjartan