Góðar fréttir!
Komið nú öll blessuð og sæl – er ekki kominn tími á stutta færslu?!?!
Héðan er bara allt gott að frétta. Við hjónin fengum góðar fréttir seinni partinn í dag. Við fórum með Karitas í hjartasónar og prófessorinn frá Gautaborg, sem skoðaði hana, var voðalega ánægður með framfarirnar. Hann sagði hjartað hennar vera í það góðu lagi að við þurfum ekki að koma aftur í sónar fyrr en eftir u.þ.b. tvö ár! Við erum svo ánægð með þessar fréttir! ![[:D]](/images/smile/smile4.gif)
Hann sagði samt við okkur að hún þyrfti að koma með nokkurra ára millibili alveg fram á fullorðinsár þar sem nauðsynlegt er fylgjast með örinu á ósæðarboganum. Hann sagði að þar geti myndast önnur þrenging ef örið stækkar ekki í samræmi við hjarta og æðar. Ef það gerist þá þarf Karitas að fara í hjartaþræðingu. Við ætlum ekkert að vera hugsa um það fyrr en að því kemur – ef það verður þörf á því yfir höfuð. Við erum bara bjartsýn og vonum bara það besta.
Við fengum aðrar góðar fréttir í dag. Þar sem Karitas er alveg sjúklega hrædd við lækna og hjúkrunarfræðinga, sem er kannski ekki skrýtið, þá er búið að bjóða henni að koma í ´lekterapi´ á spítalanum. Þar vinna sérhæfðir einstaklingar sem taka mið af hverju og einu barni og hjálpa því í gegnum sín vandamál gegnum leiki og hlutverk. Þetta á vonandi eftir að hjálpa henni og við erum mjög ánægð með að spítalinn skyldi bjóði henni þessa aðstoð. Karitas á eftir að heimsækja spítala oftar en flest önnur börn og því þarf að gera henni ljóst að starfsfólk þeirra er einungis þar til að hjálpa henni.
Þetta er búinn að vera alveg voðalega góður dagur! ![[:D]](/images/smile/smile4.gif)
****
Yfir í annað:
Hérna er ekki búinn að vera nokkur einasti vetur – aðeins verið snjór á jörðu í rétt rúma viku. Síðustu daga hefur verið sannkallað vorveður. Það eru farnar að kíkja upp páskaliljur og túlípanar úr jörðu – ásamt því að tré eru farin að bruma. Mér finnst við hafa verið svikin þar sem ég hefði gjarnan viljað smá vetur – en fyrst hann hefur ekki látið sjá sig þá má vorið bara taka við. Bring it on!
Læt þetta duga í bili …
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Miðvikudagur 20. febrúar 2008 klukkan 14:55:19
Gott að heyra svona góðar fréttir af Karitas – viss um að þetta á allt eftir að ganga eins og í sögu
![[;)]](/images/smile/smile2.gif)
Annars hefði nú óskin um vetur alveg mátt koma fyrr – við höfum alveg verið aflögufær um hann hér í Reykjavíkinni og ég hefði alveg séð mér fært um að senda ykkur smá sýnishorn en þar sem það er farið að rigna (surprise, surprise) þá verður það að bíða betri tíma
Miðvikudagur 20. febrúar 2008 klukkan 16:47:51
Frábærar fréttir af Karítas. Ég gat ekki annað en brosað – týbískt sænskt – að hugsa um að venja börn af læknafóbíu – ekki alveg að sjá þetta gerast hérna heima
Gott að hún er vanin áður en þið flytjið heim …. það er að segja ef þið komið einhvern tíma heim.
![[:kiss:]](/images/smile/smile15.gif)
Þið hefðuð nú annars alveg mátt fá eitthvað af snjóskammtinum frá okkur, fyrst þið eruð að kvarta
Sakna ykkar böns.
Miðvikudagur 20. febrúar 2008 klukkan 18:58:49
Kata og Gulla.
Ég ætla bara að benda ykkur á að þið megið alveg halda snjónum á Íslandi. Þó svo að konan mín sé haldin einhverri þráhyggju af snóleysi þá líðiur mér bara ágætlega. Þannig að öll boð um að senda snjó eru hér með afþökkuð
.
Kveðjur úr hlýindunum.
JOSI..