Jóhann 29 ára í dag!
Skrifað af Anna þann 28. febrúar 2008
Innilega til hamingju með daginn elsku Jósi okkar – bara orðinn 29 ára gamall!
Við skulum reyna dekra við þig eins og við getum í dag – svona innan ákveðinna marka samt!
Elskum þig!
Anna, Tóti og Karitas
Hér fyrir neðan sjáið þið mynd af afmæliskökunni hans:

Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 08:41:22
Til hamingju með afmælið vinur. Það er ótrúlegt til þess að vita að við séum orðnir 29 ára. Mér finnst ég vera 19 ára. Það sannast með hverjum deginum sem líður hvað við eldumst vel.
Eigðu góðan dag
kv
Vídó
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 09:32:43
Elsku bestasti JÓSI!!!
Innilega til hamingju með daginn!
Verðum í bandi í dag,
Knús Karitas
![[:haha:]](/images/smile/smile19.gif)
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 09:35:43
Elsku Jóhann Sigurður.Innilegar hamingjóskir með daginn,ótrúlegt að það séu 29 ár síðan þú komst í heiminn,núna 29 árum síðar er veðráttan nákvæmlega eins og þann dag,allt á kafi í snjó.Okkur þykir svo óumræðanlega vænt um ykkur öll.Eigiði öll yndislegan dag.kv mamma og pabbi..
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 10:57:37
Til hamingju með daginn "gamli" minn
Vona að þú eigir góðan dag með familíunni, ef eitthvað er að marka afmælistertuna þá sýnist mér nú að það eigi heldur betur að dekra við þig
)
Knús á línuna
Gulla (sem er ennþá "bara" 29 eins og þú
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 16:58:47
Sæll félagi. Til hamingju med daginn. Það má með ólikindum telja hvað hefur ræst úr þér miðað við þá sem að þér standa. Þú stendur svo sannarlega upp úr hárinu á honum pabba þínum. Bestu kveðjur til Önnu og barnanna tveggja.
Kveðjur úr loðnuatinu í Eyjum
Hörður Óskarsson
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 18:28:46
Elsku besti Hörður minn, hvaða hár ertu að meina ég hélt það væri löngu fallið til jarðar og það fyrir 30 árum síðan!!!!![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 19:03:53
Sæll vertu Jóhann..Fyrst Hörður minnist á þetta með hárið þá er það rétt ég byrjaði að missa hár eftir að þú fæddist og ekki lagaðist það þegar þú kynntist "villingnum í Odda" skoðaðu höfuðið á Óla Lár
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 20:00:59
Sæll Jóhann! Til hamingju með daginn. Biðjum kærlega að heilsa fjölskyldunni
Kveðja, Hafdís, Jóhann, Hannes, Sindri og Magnea.
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 20:25:03
Til hamingju með daginn Jósi okkar. Hvar í Svíþjóð fenguð þið eiginlega þessa lundaköku…eða er þetta skata
Vona að þið hafið haft það sem allra allra best í dag…og Anna gott hjá þér að láta kallinn vita að allt sé innan marka
Saknaðarkveðjur
Kata, Marri og dætur.
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 klukkan 21:25:34
Elsku Jósi
Vonandi hefur dagurinn verið góður og ég veit að Anna og börnin hafa dekrað við þig (Innan ákveðinna marka hohoho). Knús knús frá okkur í snjónum mikla
Innilega til hamingju með daginn kæri vinur
Magga, Garðar og ormarnir.
Föstudagur 29. febrúar 2008 klukkan 23:04:39
Innilega til hamingju með afmælið í gær elsku Jói, ég veit sko að Anna hefur dekrað vel og mikið við þig ef ég þekki hana rétt
Bestu kveðjur úr snjónum á Sigló
Laugardagur 1. mars 2008 klukkan 08:02:35
Jóhann það aumt yfirklór að vera að kenna okkur um hárleysi pabba þíns. Pabbi þinn heldur mikið upp á tvo tónlistarmenn, Elvis er annar og hinn er Ómar Ragnarsson og pabbi þinn ákveður að vera með sömu hárgreiðslu og Ómar. Allt tal um að hárleysið sé okkur að kenna er bull og þvaður enda ekki hægt að finna betri drengi
Laugardagur 1. mars 2008 klukkan 12:37:08
Kjartann…Ert þú VILLINGURINN Í ODDA
Miðvikudagur 5. mars 2008 klukkan 22:51:33
Til lukku með ammalið hlunkur