JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Sjúkrahúsvist!

Skrifað af Anna þann 5. mars 2008

Já, þið lásuð titilinn rétt –

Við mæðgurnar komum heim í dag eftir tveggja sólarhringa dvöl á Kärnsjukhuset í Skövde, eða KSS eins og það er kallað.
Litla greyið var lögð inn vegna vírusar sem hún hafði nælt sér í – sem samanstóð af uppköstum, niðurgangi og lystaleysi.

Sagan er þessi:
Þegar ég sá að Karitas ætlaði ekki að ná sér af ælupestinni, sem ég hélt hún væri með, þá varð ég mjög óróleg og hringdi á heilsugæsluna okkar. Þar var mér tjáð að bíða aðeins og sjá til yfir helgina – þar sem það ætti ekki að gera henni mikið. Við áttum bara að sjá til þess að hún fengi nóg að drekka. Ég varð nú frekar gáttuð það sem dóttir okkar hefur ágætis sjúkrasögu og ég vildi bara láta athuga hana. Hvað gat ég annað gert en að láta slag standa og reyna bara að halda að henni drykk.
Á sunnudeginum líst mér ekki lengur á blikuna. Við vorum farin að sprauta upp í hana orkudrykk með sprautu, þar sem hún neitaði að drekka sjálfviljug. Á sunnudagskvöldinu hringi ég á bráðamóttökuna og segi hjúkkunum þar að ég sé orðin mjög óróleg þar sem dóttir mín sé algjörlega lystarlaus og uppköstin séu ekki betri. Þegar hér er komið sögu er hún búin að vera slæm í tæpa viku. Ég fæ þau skilaboð að bíða fram á mánudagsmorgun – ég get sko sagt ykkur að ég svaf ekki dúr þá nótt.
Þegar ég hringi svo niður á barnadeild á mánudagsmorgninum gef ég þeim nákvæma lýsingu á ástandi hennar og segi þeim frá því að ég hafi reynt að fá hana skoðaða tvisvar sinnum en fengið neitun í bæði skiptin. Þegar hjúkkan heyrir þetta þá boðar hún Karitas í skoðun innan klukkustundar og þá fáum við þær fréttir að hún verði lögð inn vegna þess hversu slöpp hún er.
Við erum inni á barnadeildinni í tvo sólarhringa og litla snúllan sárlasin með næringu í æð. Ég er svo gáttuð á því hvernig hægt er að dæma veikindi barna í síma – sérstaklega þeirra sem eiga sér sjúkrasögu. Ótrúlegt alveg! [:strano:]

Núna erum við mæðgurnar samt komnar heim og skvísan allt önnur. Það mun samt taka hana nokkra daga að koma sér í fyrra horf. Hún er samt ótrúlega dugleg og fljót að ná sér – litla hetjan okkar! [:kiss:]

Eins og við höfum sagt áður þá erum við alvarlega farin að velta því fyrir okkur að kaupa einkaherbergi á spítalanum. Þeir sem þekkja okkur vita af hverju! [;)]

Setti inn nýjar myndir á síðuna þeirra!

kossar og knús,
Anna

Senda á Facebook:
  • Facebook

4 Athugasemdir við “Sjúkrahúsvist!”

  1. 1
    Sigurjón Lýðs:

    Hvurslags vesen er þetta? En gott er að stelpan er öll hressari. Við biðjum að heilsa úr Hafnarfirðinum ;-)

    Kveðja, Sigurjón og Þórey

    Josi, þú mátt alveg slá á þráðinn til mín á morgun ef þú mannst eftir því. Vantar aðeins að heyra í þér

  2. 2
    Silla vinkona:

    En leiðinlegt að heyra að Karitas hafi verið svona mikið lasin …litla snúllu dúllan! En það er mjög gott að hún sé að ná sér [:)] og farin að borða aftur [:D]
    Bestu kveðjur frá okkur stórfjölskyldunni á Sigló

  3. 3
    Magga vinkona:

    Ja hérna hér – það er rosalegt að heyra þetta af litlu snúllunni. Gott að hún er orðin hressari þessi elska :) knús knús
    Magga vinkona [:kiss:]

  4. 4
    Vala:

    Æ litla greyið, það er alveg ótrúlegt með þessa Svía og greiningu þeirra í gegnum síma, kannast alveg við svona. Þið verðið bara að flytja heim [;)] sem fyrst, allavega á næsta ári..

    knús knús Vala

Skilja eftir athugasemd

 

mars 2008
Þ Mi Fi L S
« feb.   apríl »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

Switch to our mobile site