JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

2ja ára!

Skrifað af Anna þann 6. apríl 2008

Núna er litla Karitas Guðrún prinsessan okkar orðin 2ja ára. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt – en um leið verið alveg yndislegur og notaður til fullnustu.

Núna eru amma Úlla og afi Svenni hjá okkur svo afmælisboðið hennar varð því aðeins fjölmennara en í fyrra – og alveg voðalega vel heppnað. Auk afa og ömmu buðum við fjölskyldunni Petersen yfir til okkar í heitan rétt, súkkulaðiköku og prinsessutertu. Krakkarnir nutu samverunnar og þó mest litla skottan sem elskaði að fá að leika með stóru krökkunum – enda orðin voðalega stór og sjálfstæð að eigin mati.

Vonum að þið hafið haft það jafn gott og við í dag -

****

Innilega til hamingju með 2ja ára afmælisdaginn elsku litla prinsessan okkar og sólargeisli.
Við elskum þig svo óendanlega mikið!

Afmæliskveðja – kossar og knús,
Mamma, pabbi og Tóti bró!

Senda á Facebook:
  • Facebook

3 Athugasemdir við “2ja ára!”

  1. 1
    Silla vinkona:

    Innilega til hamingju með prinsessuna ykkar ….hún er yndisleg [;)] Ég veit að þið hafið haft það gott með ömmu Úllu og afa Svenna [:)]
    Kossar og knús frá okkur fjölskyldunni [:kiss:]

  2. 2
    Magga vinkona:

    Til hamingju með fallegu prinsessuna ykkar, orðin 2ja ára :) Mikið rosalega líður tíminn hratt. Hafið það rosalega gott og njótið stundanna með ömmu Úllu og afa Svenna. 6. apríl er náttúrulega æðislegur dagur [:kiss:]
    knús og kossar frá Möggu vinkonu og fjölskyldu.

  3. 3
    Hanna Sigrún:

    Vá hvað tíminn er fljótur að líða, litla skotta bara orðin 2 ára!! Innilega til hamingju með hana, ég sé á myndunum að börnin þín dafna vel og að Svíþjóð er enn að fara vel með ykkur:)
    Takk fyrir kveðjuna á síðunni okkar, þótti mjög vænt um hana. Þú ert náttúrulega einstök Anna mín:) Það væri nú gaman að hittast við tækifæri, vona að það verði mögulegt fyrr en síðar:)
    Bestu kveðjur úr Hafnarfirðinum,
    Hanna, Gummi og Gunnar Flóvent

Skilja eftir athugasemd

 

apríl 2008
Þ Mi Fi L S
« mars   maí »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930  

Switch to our mobile site