JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Astmi og eyrnabólga!

Skrifað af Anna þann 10. maí 2008

Komið nú öll blessuð og sæl!

Hér er heldur betur búið að vera nóg að gera síðustu vikurnar. Karitas Guðrún er búin að vera veik: hiti, kvef og mikill langvarandi hósti. Við erum búin að vera með hana inni á spítala í blóðprufum og skoðunum. Læknarnir skrifuðu svo lyfseðla fyrir tveimur astmalyfjum – telja nefnilega að hún sé með astma. Mér finnst það nú voðalega skrýtið og mér finnast lyfin ekkert virka á hana þó hún sé búin að vera á þeim í dágóðan tíma núna – en ég er nú enginn sérfræðingur. Ég frétti svo í gær að Kíghósti er að ganga hérna í Värsås. Það finnst mér nú betri greining – þó hún sé nú búin að fá bólusetningu gegn honum (en það eru líka börnin sem eru að fá hann hérna í hverfinu). Ég er búin að lesa mér til og mér finnast einkennin passa mjög vel við dóttur mína – sérstaklega þar sem hún er mun verri af hóstanum á næturnar og fær þá mikil hóstaköst. Við fórum auðvitað eftir ráðum læknisins og gáfum henni astmalyf við þessum hóstaköstum en lyfin virka bara ekki neitt. Á mánudaginn ætla ég að hringja enn eina ferðina niður á spítala og greina frá Kíghóstanum og segja að þessi lyf hjálpi henni ekki neitt … astminn ætti nú að verða betri fljótlega eftir að hafa fengið púst!?!?!?

Aðrar fréttir eru þær að Tóti er búinn að missa sína þriðju tönn – og í þetta skipti var það vinstri framtönnin hans. Þetta tannleysi fer honum bara þónokkuð vel – og þið getið séð myndir af honum ef þið smellið hér.
Tóti fékk eyrnabólgu síðastliðinn mánudag og er búinn að vera á penicillini í fimm daga. Hann missti því af fyrstu fótboltaæfingunni sinni, vegna þess hve slæmur hann var í eyranu, en við fórum auðvitað og horfðum á. Hann fer því hress og kátur á mánudaginn – með flottu legghlífarnar, sokkana og takkaskóna sína!

Síðustu vikuna eða svo er búið að vera alveg frábært sumarveður hérna hjá okkur: heiðskýrt, sól og u.þ.b. 20 gráður í forsælu. Gærdagurinn var reyndar bestur með 23,5 gráðum í forsælu og algjörri bongóblíðu í bakgarðinum okkar – og helgin á víst að verða betri! Hér verður heldur betur grillað um helgina og leikið utandyra … [;)]

Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili – bara örstutt update af okkur!

Hafið það sem allra best!

Kossar og knús,
Anna [:)]

Senda á Facebook:
  • Facebook

Ein Athugasemd við “Astmi og eyrnabólga!”

  1. 1
    Gulli:

    Á ekkert að fara að blogga?
    (grjót, glerhús o.s.frv.)

Skilja eftir athugasemd

 

maí 2008
Þ Mi Fi L S
« apríl   ág. »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  

Switch to our mobile site