Svenni frændi 2ja ára í dag!
Skrifað af Anna þann 17. ágúst 2008
Elsku Svennalingurinn okkar -
Innilega til hamingju með 2ja ára afmælið þitt! Munaði svo ótrúlega litlu að við gætum samfagnað með þér – en svona er þetta þegar maður á heima í útlöndum og skólarnir að hefjast. En þið getið bókað að við verðum með ykkur í huganum í dag! ![[:kiss:]](/images/smile/smile15.gif)
Njótið ykkar í botn og við bíðum spennt eftir afmælismyndum!
Afmæliskossar og knús,
Anna frænka og co.
***
Fyrir þá sem vilja lesa ferðasöguna okkar þá er ég ennþá að mana mig upp í að skrifa hana. Þetta verður líklegast svakalega löng færsla. Set hana inn vonbráðar.
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Þriðjudagur 9. september 2008 klukkan 16:04:38
var að skoða myndaalbúmið fyrir ágúst mánuð og ég er eiginlega grátandi yfir því að ekki skuli vera þarna mynd af mér og Tóta vini mínum!!!!
Miðvikudagur 10. september 2008 klukkan 22:49:49
Kjartan minn þetta er barnasíða þessvegna hefur ritsjórn ákveðið að láta ekkert inn sem er ekki við hæfi barna (þú flokkast undir að vera of ljótur)![[:D]](/images/smile/smile4.gif)
Föstudagur 12. september 2008 klukkan 10:09:33
Veistu hvað er að þér? Það er gaman að þér!!!