JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Bæbæ nefkirtill!

Skrifað af Anna þann 25. september 2008

Jæja gott fólk – er ekki kominn tími á smá uppfærslu?

Hérna í Sverige heldur áfram að hausta og litadýrðin orðin eftir því. Trén eru ýmist gul, rauð eða græn – voðalega fallegt! Við erum búin að vera alveg einstaklega heppin með veður síðustu daga. Kalt þegar við leggjum af stað í skólann en orðið fínasta veður seinni partinn! :)

Ég verð að segja ykkur að ég hringdi niður á barnadeildina, á KSS sjúkrahúsinu, í gærmorgun. Ég er orðin svo langþreytt á þessu kvefi, hósta og öllu því sem fylgir – hjá henni litlu Karitas. Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að hún er alltaf svona. Hjúkkan sem ég talaði við vildi endilega fá okkur mæðgurnar í skoðun, vegna fyrri sögu. Læknirinn sem tók á móti okkur var alveg á því að Karitas þyrfti að hitta Háls-, nef- og eyrnalækni og það sem fyrst. Læknirinn skrifaði beiðni inn á HNE og við vorum mættar þangað inn eftir hálftíma. Hugsa sér að við áttum ekki að fá tíma þar fyrr en eftir 10 vikur!
Þegar við hittum HNE-lækninn þá sagði hann að Karitas hefði öll einkenni þess að nefkirtillinn væri eitthvað að trufla hana. Hann taldi að þessi aðgerð gæti hjálpað henni alveg heilmikið, en það væri auðvitað ekki hægt að lofa því upp á hundað prósent. Hún er sem sagt komin á biðlista og aðgerðin verður gerð innan þriggja mánaða. Þetta er sama barnið sem læknunum þótti ekki nauðsynlegt að hitta fyrir nokkrum vikum síðan…
Þá vitið þið það! ;)

Nú er kominn háttatími á prinsessuna – og þegar hún er sofnuð ætlum ég og Anna vinkona að skella okkur út í göngu!

Hafið það sem allra best!

Kossar og knús,
Anna

Senda á Facebook:
  • Facebook

Skilja eftir athugasemd

 

september 2008
Þ Mi Fi L S
« ág.   okt. »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930  

Switch to our mobile site