Kräftskiva!
Komið nú öll blessuð og sæl!
- Vonandi er allt gott að frétta af ykkur…
Strax eftir hádegi í gær hringdi læknirinn, sem skoðaði Karitas á miðvikudaginn, og sagðist vera kominn með niðurstöður úr ræktun sem var tekin. Læknirinn sagði að það væri sýking í öndunarveginum og að Karitas þryfti að byrja á penicillini, enn og aftur! Læknirinn sagði að litla daman hefði áður fengið þessa sýkingu og að nú þyrfti að finna penicillin sem myndi, vonandi, vinna á þessari sýkingu í eitt skipti fyrir öll.
Það ætla ég svo sannarlega að vona – og að þessari eilífu sjúkrasögu, varðandi kvef og hósta, fari þá að ljúka!
Út í annað:
Í kvöld ætlum við og a.m.k. fjórar nágrannafjölskyldur að halda Kräftskiva í bílskúrnum okkar. Þetta er sænskur siður þar sem fólk kemur saman og borðar Kräftor (e. Crawfish).
Ef ég þekki nágranna okkar rétt verður þetta alveg bráðskemmtileg kvöldstund. Við ákváðum að halda þetta í bílskúrnum okkar þar sem Karitas mun líklegast sofna snemma og þá getum við bara tekið „barnapíuna“ með okkur út í bílskúr. Þetta er sameiginleg veisla þar sem allir koma með sínar eigin Kräftor en sameiginlegt meðlæti. Ekkert jafnast á við góða granna!
Hafið það sem allra best í dag!
Kossar og knús,
Anna

