Aðgerð og BS í tölvunarfræði
Komið öll blessuð og sæl.
Nú er bloggið búið að vera í smá hvíld… og við skulum vona að það komist aftur á gott skrið!
Amma Gunna kíkti í heimsókn til okkar þann 10. október síðastliðinn. Hún kom til okkar á sjálfan afmælisdaginn sinn – svo við ákváðum að bjóða henni upp á humar. Alltaf gott að borða humar í kreppu! Síðan þá hafa dagarnir bara liðið hver á fætur öðrum og við búin að hafa það voðalega notalegt saman. Við vorum mjög dugleg að dúlla okkur heimavið í þetta skiptið og þá bæði innan og utandyra. Við keyrðum reyndar til Jönköping í gær bara til að fá smá tilbreytingu.
Í morgun kvöddu gormarnir ömmu Gunnu, áður en þau fóru í skóla og leikskóla. Verður voðalega skrítið fyrir þau að mæta heim í dag og engin amma Gunna til að taka á móti þeim. En svona er bara lífið í Sverige, gestir koma og fara. Nú styttist reyndar óðfluga í næstu ömmu, sem kemur til okkar þann 13. nóvember.
Karitas er búin að fá aðgerðardag fyrir nefkirtlatökuna; 4. nóvember næstkomandi. Ég er virkilega búin að berjast fyrir því að eitthvað verði gert í hennar málum, þar sem hún er krónískt kvefuð, en það voru afar blendnar tilfinningar loksins þegar tilkynningin um aðgerðina barst. Ég vona heitt og innnilega að nefkirtlatakan muni hjálpa henni, þar sem hún er alltaf kvefuð greyið. Hún er auðvitað kvefuð núna og varð það einungis fjórum dögum eftir að hún hætti á penicillininu, sem er met. Penicillinið var greinilega ekkert að virka á hana! Nú er bara að vona það besta!
STÓRAR FRÉTTIR!
Júhúúúúúúúú! Jóhann er búinn að fá BS.ritgerðina sína samþykkta!
Nú á hann bara eftir að skila henni inn, á sérstakt forrit, á bókasafninu sem síðan prentar hana út og bindur inn! Innilega til hamingju með þetta ástin mín, þú ert búinn að standa þig eins og hetja!
Nú er bara að bíða eftir prófskírteininu og þá ertu kominn með BS í tölvunarfræði!
Læt þetta duga í bili!
Kossar og knús,
Anna
Mánudagur 20. október 2008 klukkan 12:25:34
Elsku litli Jósi minn. Til hamingju með það að klára ritgerðina. Ég man ennþá þegar ég skilaði ritgerð um Ýsuna í 9.bekk það var svipað þrekvirki og þín ritgerð.
Mánudagur 20. október 2008 klukkan 13:20:28
Elsku besti frændi minn! Til hamingju með ritgerðina þína – djöfull ertu búinn að vera duglegur
Kjartan, ritgerðin um ýsuna hljómar ótrúlega spennandi, spurning um að deila henni með umheiminum
Mánudagur 20. október 2008 klukkan 13:40:40
Ég held að Kjartan sé að rugla saman fisktegundum. Hann skrifaði ritgerð um sænska „þorskinn“ sem hann metur mikils og reynir að gera allt eins og hann (Torsk á sænsku)