JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Rafmagnslaust!

Skrifað af Josi þann 23. október 2008

Jæja, þá er kominn sá tími ársins þegar rafmagnsleysin byrja að gera vart við sig… og í þessum skrifuðu orðum stendur það fyrsta yfir!

Nú sitjum við hjónin umvafin kertum og höfum það voðalega notalegt saman! Ég sit og blogga á meðan Jósi fær sér einn kaldan.
Þar sem maðurinn minn er kominn með gott ‘backup‘ kerfi fyrir tölvunar þá getum við notað tölvurnar okkar og internetið í u.þ.b. þrjár klukkustundir, eftir að rafmagnsleysi hefst. Ekki slæmt að lifa á tækniöld og eiga rafmagns- og tölvugúru fyrir mann! Við vonum samt að þetta fyrsta rafmagnsleysi haustsins verði ekkert svakalega langdregið…

Hef þetta ekki lengra í bili – þarf að spara batteríið!

Kveðja úr rafmagnsleysinu í Värsås,
Anna

Senda á Facebook:
  • Facebook

Ein Athugasemd við “Rafmagnslaust!”

  1. 1
    Kjartan Vídó:

    afhverju kemur mér ekkert á óvart að Jóhann sé með varaflstöð fyrir tölvuna.
    Sakna ykkar mikið, það var sko gaman hjá okkur í sumar. Við þurfum að taka okkur á og hafa meira samband.
    En varðandi bjórinn hans Jósa, ekki láta hann drekka of mikið.

Skilja eftir athugasemd

 

október 2008
Þ Mi Fi L S
« sept.   nóv. »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Switch to our mobile site