Vetrartími
Nú er kominn vetrartími hjá okkur í Svíþjóð, og auðvitað í fleiri löndum. Nú í morgun færðum við klukkuna aftur um eina klukkustund. Nú er sem sagt bara eins tíma munur á Svíþjóð og Íslandi, sem er bara hið besta mál. Mér finnst nefnilega muna alveg ótrúlega miklu um þessa einu klukkustund.
Það er bara allt ágætt að frétta af okkur. Helgin byrjaði samt ekkert svakalega vel, þar sem fóstrurnar hringdu klukkan tíu á föstudagsmorguninn og sögðu okkur að Karitas hefði dottið. Karitas hafði fengið alveg rosalega stóra kúlu á ennið, þá stærstu sem ég hef séð. Fóstrurnar voru svolítið óvissar og hringdu því í mig, þar sem litlu munaði að það hefði sprungið fyrir. Ég fór og sótti hana um leið og samtalinu var lokið – og mér brá virkilega við að sjá hvernig litla prinsessan mín leit út. Karitas var enn í sjokki þegar ég kom en var fljót að ná sér, ótrúlegt hvað það er seigt í þessari litlu stúlku. Getum verið virkilega þakklát fyrir það!
Hér sjáið þið hornið á litlu prinsessunni okkar:
Tóti er alltaf jafn hress og kátur. Honum gengur vel í skólanum og bíður spenntur eftir haustfríinu, sem er í næstu viku. Þar sem við þurfum að lesa fyrir próf þá þurfa krakkarnir að vera á frístundaheimilinu og í leikskólanum. Þeim finnst það nú ekki leiðinlegt, svo ég er ekki með samviskubit!
Já, og svo má ekki gleyma að Jósi braut glerin í gleraugunum sínum í gær! Við ætlum að fara með þau í viðgerð í dag og kíkja á gjarðir fyrir aukagleraugu. Slæmt þegar eitthvað svona kemur fyrir og maður á ekkert til vara…
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili!
Kossar og knús,
Anna


Sunnudagur 26. október 2008 klukkan 13:07:32
Hvaða vesen er þetta á karlinum!! Hahah – djóóók
En ég er virkilega sammála þér – þetta er LANG stærsta kúla sem ég hef séð…
En knús á ykkur – love love love
KS&HJ:mrgreen:
Sunnudagur 26. október 2008 klukkan 13:24:55
Gleðilegan vetur


Vá ég hélt ég hefði séð allar gerðir af kúlum í gegnum tíðina en OMG þetta slær öllu við
Oh hvað ég skil þig vel Anna mín…mér fannst þetta alltaf líka að það munaði svo ótrúlega miklu um þennan eina klukkutíma
Allt fínt að frétta af okkur, öll hress og og glöð og búin að kynnast enn einum vini ykkar, henni Siggu frá Vestmaneyjum (bjó í Örebro). Ótrúlega lítill heimur.
Kveðja
Kata og familj.
Sunnudagur 26. október 2008 klukkan 17:15:37
Vá þetta er engin smá kúla – hef hreinlega ekki séð hana stærri:? en gott að daman var fljót að jafna sig.
Já það munar hellings með þennan eina klukkutíma – sammála því að maður græðir fullt á honum hihi.
Sigfús er með hlaupabóluna svo að við erum búin að vera letidýr í marga daga en þetta er nú að ganga yfir og einnig vetrarfrí hjá Huldu Þórlaug á morgun, nóg að gera
En risa knús til ykkar og saknaðarkveðjur
Magga og ormarnir