JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Gekk vel!

Skrifað af Anna þann 5. nóvember 2008

Jæja, eins og þið hafið kannski lesið þá fór Karitas í nefkirtlatöku í gær. Aðgerðin gekk bara vel!
Það kom okkur foreldrunum reyndar mjög á óvart hversu lengi hún var inni í aðgerðinni, eða u.þ.b. 50 mínútur. Við vorum mætt klukkan korter yfir sjö í gærmorgun og vorum ekki komin aftur út af spítalanum fyrr en klukkan að verða hálf fjögur síðdegis. Við vorum mun lengur en áætlað var vegna þess hversu mikið blóð hafði farið niður í maga, bæð í aðgerðinni sjálfri og á meðan hún svaf. Hún hélt engu niðri greyið og gerði því fátt annað en að sofa og gubba þennan tíma sem við vorum á spítalanum. Hún var alveg rosalega dugleg og er bara algjör hetja í okkar augum!
Það er svo gott að þessi aðgerð er yfirstaðin – og nú er bara að vona að hún verði hressari!

Ég setti inn nokkrar myndir frá aðgerðardeginum inn á heimasíðu barnanna. Ég setti ekki inn neinar myndir sem viðkvæmir ekki þola – svo endilega kíkið á litlu hetjuna! Þið getið nálgast myndirnar hér.

Jæja, ég vildi bara láta ykkur vita hvernig gekk…

Bestu kveðjur – kossar og knús,
Anna

Senda á Facebook:
  • Facebook

2 Athugasemdir við “Gekk vel!”

  1. 1
    Kjartan Vídó:

    Það er gott að allt gekk vel í aðgerðinni. Það er ekki auðvelt að sitja og bíða þegar barnið mans er í aðgerð. En það er gott að Jóhann hafði kubba til að róa taugarnar.

  2. 2
    Silla vinkona:

    En hvað það er gott að heyra að aðgerðin hafi gengið vel hjá litlu prinsessunni :P Hún er sannkölluð hetja ;)
    Kossar og knús frá okkur fjölskyldunni

Skilja eftir athugasemd

 

nóvember 2008
Þ Mi Fi L S
« okt.   des. »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930

Switch to our mobile site