JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Íslenskir stafir og iTunes fyrir mac

Skrifað af Josi þann 25. nóvember 2008

Ég útbjó scriptu sem lagar íslenska stafi í iTunes á mac þegar búið er að færa lög inn frá Windows tölvu. Þetta hefur verið vanda mál fyrir marga Maca notendur og eina lausnin hefur verið að keyra „Search and replace“ scriptu fyrir hvern staf og hvert tag. Þessi scripta lagar alla vandamála stafi (ð,Ð,þ,Þ,ý og Ý) sjálfvirkt og getur einnig lagað öll tögin í einu. Ég tók þá ákvörðun að hún lagar aðeins það sem valið er, þannig að merkja verður (gera lögin blá) öll lög sem scriptan á að kíkja á og laga.

Scriptuna má nálgast hér að neðan:

fix_icelandic_itunes

Kveðja

JOSI

Lýsing á scriptu

„Laga íslensku“ V. 1.0

——Bakgrunnur——
Þessi skripta lagar Íslenska stafi í iTunes fyrir Mac.
Vandamálið er að þegar Windows skrifar í headerinn á tónlistarskrám þá notast hann við annað stafa sett en Mac.
Þetta gerir það að verkum að Íslensku stafirnir ð,Ð,þ,Þ,ý og Ý byrtast makka notendum vitlaust.
Þessi skripta fer í gegnum þau lög sem eru valin (Merkt blá) í iTunes og lagar öll tög eða það tag sem þú vilt laga.

——Uppsettning——
Til þess að setja scriptuna upp þarf að kópera skránna (Laga íslensku.scpt) í
/Users/Þitt_Notendanafn/Library/iTunes/Scripts

Ef að mappan Scripts er ekki til þarf að búa hana til, kópera skránna og endurræsa iTunes.
Þá ætti að birtast Script ícon í menu barnum sem þú velur til að ræsa skriptuna.

——Notkun——
Þegar búið er að setja scriptuna upp þarf að velja þau lög sem þú vilt laga (gera þau blá) fara síðan í menubarinn og velja scriptu iconið og smella á „Laga íslensku“. Þá kemur upp valmynd sem gerir þér kleift að velja hvaða tag skriptan á að laga. Þessi skripta lagar eftirfarandi tög: „Öll tög“, „Titill“, „Plata“, „Flytjandi“, „Flytjandi plata“, „Höfundur“, „Komment“.

Ef einhver vandamál koma upp er hægt að hafa samband

Notkun þessarar skriptu er á eigin ábyrgð þó svo að búið sé að prufa hana á yfir 1000 Íslenskum lögum án nokkurar vandræða..

Senda á Facebook:
  • Facebook

Ein Athugasemd við “Íslenskir stafir og iTunes fyrir mac”

  1. 1
    Helgi Rúnar:

    Sæll….

    Þetta virkar alveg þangað til að ég ræt scriptið vinna, þá finnur hann ákv. margar villur í þeim lögum sem ég hef valið en lagar þær ekki. Segir mér bara fjöldann af viltlausum stöfum en svo breytir engu. Hvað gæti verið að ? Einhverja hugmynd ?

Skilja eftir athugasemd

 

nóvember 2008
Þ Mi Fi L S
« okt.   des. »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930

Switch to our mobile site