Laugardagar = nammidagar
Þá er aftur kominn laugardagur – og börnin bíða spennt eftir sjoppuferð!
Karitas komst mjög fljótt upp á lagið með þessar sjoppuferðir og vill kaupa allt sem hún sér. Núna situr alltaf annað okkar úti í bíl með Karitas á meðan hitt fer með Tóta inn í sjoppuna. Hún sættir sig vonandi við það fljótlega… Hahahha…
Við áttum svo notalega kvöldstund með Tóta í gær, horfðum nefnilega saman á WALL-E. Tóti var alveg heillaður af þessari mynd og hló sig nánast máttlausan af vissum atriðum. Svo gaman að eyða smá ‘quality-time‘ með honum! Tóti var búinn að bíða svo spenntur eftir að sjá þessa mynd, þar sem hann var búinn að heyra svo mikið um hana frá skólafélögum sínum. Jóhann hafði líka gefið honum WALL-E vélmenni sem vakti mikla lukku.
Af okkur er annars bara allt gott að frétta.