JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Nefkirtlataka!

Skrifað af Anna þann 4. nóvember 2008

Jæja, þá er komið að því!

Núna eru allir á heimilinu að vakna og undirbúa sig fyrir langan dag – þar sem Karitas er að fara í nefkirtlatökuna sína á eftir. Hún á að vera mætt á spítalann klukkan 07:15. Við þurfum því að fara með Tóta greyið á frístundaheimilið klukkan hálf sjö! Æi – ég verð að segja að ég er alveg svakalega fegin að við fáum að mæta snemma, þar sem Karitas er búin að vera fastandi síðan á miðnætti í nótt.

Við vonum innilega að þessi aðgerð gangi vel og að hún verði hressari eftir þetta
- elsku litla dúllan okkar!

Jæja, ég verð að fara halda áfram að gera okkur klár!

Kossar og knús,
Anna

Senda á Facebook:
  • Facebook

2 Athugasemdir við “Nefkirtlataka!”

  1. 1
    Sigrún frænka:

    Hugsa til ykkar í dag elskur og sendi ykkur góða strauma. Viss um að þetta gengur vel og að hún verði eldsnögg að ná sér þessi litla dugnaðarstelpa. Knús og elsk til ykkar allra :****
    Sigrún frænka

  2. 2
    Stella frænka ****:

    Er svo mikið með hugann hjá ykkur, vona að aðgerðin hafi gengið vel og að litlu hetjunni líði vel… Ég kveikti á litlu kerti í morgun og sendi henni orku *

    Elska ykkur svo mikið, koss til ykkar allra ****

    Stella frænka!

Skilja eftir athugasemd

 

nóvember 2008
Þ Mi Fi L S
« okt.   des. »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930

Switch to our mobile site