Prjónaði kjól!
Skrifað af Anna þann 20. nóvember 2008
Hæ allir!
Langaði bara að monta mig aðeins – var nefnilega að prjóna kjól! Ég hef ekki prjónað eina flík síðan ég kláraði lokaverkefnið mitt í 10. bekk – en ákvað að taka upp prjónana þegar mamma kíkti í heimsókn. Mamma var hjá okkur í viku og ákvað að leiðbeindi mér aðeins í gegnum prjónaskapinn – takk fyrir það elsku mamma mín!
Hér sjáið þið mynd af frumrauninni – mont mont mont!

Jæja, hef ekkert meira að segja í bili – hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Föstudagur 21. nóvember 2008 klukkan 14:36:36
VVVáááa segi ég bara
þetta er svakalega flottur kjóll hjá þér, alltaf sami myndarskapurinn í henni Önnu Ýr.
knús knús
Föstudagur 21. nóvember 2008 klukkan 21:22:00
Duglega kona! Ekkert smá flottur kjóll hjá þér skvís – Viss um að Karitas á eftir að vera alger pæja í honum
Sunnudagur 23. nóvember 2008 klukkan 23:28:25
Vá,frábært hjá þér, mjög flottur kjóll
Það virðist vera alveg sama hvað þú tekur þér fyrir hendur útkoman er alltaf glæsileg
Mánudagur 24. nóvember 2008 klukkan 11:54:55
Vááá elsku sys:lol: Það er eins og þú hafir aldrei gert annað en að prjóna!!!8O Ekki mun ég get gert svona flott:roll:
Knús og 1000 kossar