JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Tóti er 8 ára í dag!

Skrifað af Anna þann 8. janúar 2009

Hugsa sér að það séu liðin heil 8 ár frá því að hann Tóti okkar fæddist – og mér finnst bara eins og það hafi bara gerst í gær. Mun aldrei gleyma því þegar ég sá hann í fyrsta skipti… og ennþá síður því þegar ég fékk hann í fangið í fyrsta skipti.

Að venju var töffarinn vakinn með afmælissöng og kossum í morgun – og þar næst var svo haldið inn í eldhús í pakkaopnun. Hann minnist þess á hverju ári, og reyndar oftar en einu sinni, að hann sé fæddur á sama degi og Elvis Presley. Hann er voðalega stoltur af því – enda finnst honum bæði Elvis og lögin hans alveg æðisleg! Held að hann sé Elvis fan nr. 2 – þar sem afi Tóti er nr. 1.
Tótalingurinn var mjög þakklátur fyrir allar fallegu gjafirnar sem hann fékk.

Fyrsti skóladagurinn, eftir jólafrí, er í dag og honum fannst nú ekki leiðinlegt að eiga afmæli á þeim degi. Hann fór með ís í skólann – og ætlar að bjóða krökkunum upp á eftir fyrri frímínúturnar. Alltaf voðalega vinsælt að fara með eitthvað góðgæti til að bjóða uppá – og gera skóladaginn ennþá skemmtilegri.

****

Elsku Tótalingurinn okkar…
Innilega til hamingju með 8 ára afmælið þitt – stóri, góði og fallegi strákurinn okkar!

Afmæliskveðjur,
mamma, pabbi og Karitas

****

Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili…
Hafið það sem allra best!

Kossar og knús,
Anna

Senda á Facebook:
  • Facebook

Ein Athugasemd við “Tóti er 8 ára í dag!”

  1. 1
    Silla vinkona:

    Innilega til hamingju með stóra strákinn ykkar – ég var einmitt að rifja upp þegar ég fékk símtalið frá Jóa og hann tilkynnti mér að prinsinn væri fæddur, hann var sko alveg í skýjunum :)
    Bestu kveðjur Silla og fjölskylda

Skilja eftir athugasemd

 

janúar 2009
Þ Mi Fi L S
« des.   feb. »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  

Switch to our mobile site