Heimsókn og endalaus veikindi.
Skrifað af Josi þann 9. mars 2009
Síðastliðnar 2 vikur hafa verið heldurbetur skemtilegar. Við fengum heimsók þann 27 febrúar en þá kom amma Gunna til okkar. Bæði Tóti og Karitas voru veik allan tímann þannig að ekki var mikið gert annað en að hlúa að þeim. En þessi tími var góður þarsem Anna og amma Gunna voru á fullu í prjónaskap þess á milli sem moppan var tekin upp til að þrífa upp gubb. Það var samt mjög gott að hafa ömmu Gunnu þar sem ekki veitti af hjálpinni þar sem systkinin þurftu mikla athygli og mikið var að gera hjá Josa við lærdóminn.
Látum þetta nægja í bili.
Fjölskyldan á Solskensvägen 9.
Mánudagur 9. mars 2009 klukkan 16:18:50
En gaman að sjá nýtt blogg og heyra frá ykkur
reyndar ekki gaman að sjá að það eru búin að vera veikindi hjá ykkur! En svona er þetta bara og ekkert við því að gera.
Bestu kveðjur frá okkur hér í snjónum á hjara veraldar
Þriðjudagur 10. mars 2009 klukkan 13:33:24
Ég vona að börnin eru orðin spræk. Gaman að amma Gunna hafi kíkt á ykkur og gott að heyra smá fréttir frá ykkur. Knús í kot og hafið það ofsalega gott, kær kveðja frá okkur öllum.