Í Norrænu á leið til Íslands
Jæja nú erum við fjölskyldan farin frá Svíþjóð og á leið til Íslands. Það er búið að vera mikið að gera síðustu daga í að pakka, ganga frá og koma búslóðinni í gám. Síðustu daga erum við búin að eyða í Legolandi (Billund) þar sem Tóti og Karitas skemmtu sér konunglega. Farið var í flest öll tæki við mis mikla gleði Karitasar en Tóti var samt mest ánægður með að nú væri hann orðinn nógu stór þannig að hann mátti fara í öll tækin. Nú í þessum töluðu örðum sitjum við í Norrænu og erum á leið til Færeyja. Það er smá sjór (ekki mikill bara smá hreyfing) þannig að Anna ákvað að lyggja fyrir við hræðslu við að verða sjóveik.
Læt þetta duga í bili.
Kveðja
JOSI
Laugardagur 11. júlí 2009 klukkan 20:57:57
Velkomin heim elskurnar