JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Færslur fyrir Blogg

Árið 2009!

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur – Við skulum vona að árið 2009 verði okkur öllum farsælt og gott! ) Af okkur er bara allt gott að frétta – búin að hafa það alveg svakalega gott um jólin og áramótin. Við hjónin erum komin á fullt í próflestri og það hefur bara gengið alveg ágætlega þrátt [...]

Gleðileg jól & farsælt komandi ár!

Nú viljum við óska ykkur öllum gleðilegra jóla & farsældar á komandi ári! Hafið það alltaf sem allra best! Jólakveðja – Jóhann, Anna, Tóti & Karitas

Íslenskir stafir og iTunes fyrir mac

Ég útbjó scriptu sem lagar íslenska stafi í iTunes á mac þegar búið er að færa lög inn frá Windows tölvu. Þetta hefur verið vanda mál fyrir marga Maca notendur og eina lausnin hefur verið að keyra „Search and replace“ scriptu fyrir hvern staf og hvert tag. Þessi scripta lagar alla vandamála stafi (ð,Ð,þ,Þ,ý og [...]

Laugardagar = nammidagar

Þá er aftur kominn laugardagur – og börnin bíða spennt eftir sjoppuferð! Karitas komst mjög fljótt upp á lagið með þessar sjoppuferðir og vill kaupa allt sem hún sér. Núna situr alltaf annað okkar úti í bíl með Karitas á meðan hitt fer með Tóta inn í sjoppuna. Hún sættir sig vonandi við það fljótlega… [...]

Prjónaði kjól!

Hæ allir! Langaði bara að monta mig aðeins – var nefnilega að prjóna kjól! Ég hef ekki prjónað eina flík síðan ég kláraði lokaverkefnið mitt í 10. bekk – en ákvað að taka upp prjónana þegar mamma kíkti í heimsókn. Mamma var hjá okkur í viku og ákvað að leiðbeindi mér aðeins í gegnum prjónaskapinn [...]

Gekk vel!

Jæja, eins og þið hafið kannski lesið þá fór Karitas í nefkirtlatöku í gær. Aðgerðin gekk bara vel! Það kom okkur foreldrunum reyndar mjög á óvart hversu lengi hún var inni í aðgerðinni, eða u.þ.b. 50 mínútur. Við vorum mætt klukkan korter yfir sjö í gærmorgun og vorum ekki komin aftur út af spítalanum fyrr [...]

Nefkirtlataka!

Jæja, þá er komið að því! Núna eru allir á heimilinu að vakna og undirbúa sig fyrir langan dag – þar sem Karitas er að fara í nefkirtlatökuna sína á eftir. Hún á að vera mætt á spítalann klukkan 07:15. Við þurfum því að fara með Tóta greyið á frístundaheimilið klukkan hálf sjö! Æi – [...]

Gleðilega hrekkjavöku!

Gleðilega hrekkjavöku kæru vinir – mohahahhahhaahaaaa! Hér í Sverige er hrekkjavakan í algleymingi og við mæðginin skelltum okkur auðvitað út í stuttan göngutúr. Tóti var afar duglegur að dingla á dyrabjöllum í hverfinu og segja: „bus eller godis!“. Hann þurfti ekki að gera neinn grikk – heldur bættist alltaf bara meira nammi í pokann hans. [...]

U2 Beautiful Day live í Slane Castle 2001

Fann þetta myndband og bara varð að setja það inn þar sem ég og Anna vorum þarna líka. Þvílíkar minningar!!

Vetrartími

Nú er kominn vetrartími hjá okkur í Svíþjóð, og auðvitað í fleiri löndum. Nú í morgun færðum við klukkuna aftur um eina klukkustund. Nú er sem sagt bara eins tíma munur á Svíþjóð og Íslandi, sem er bara hið besta mál. Mér finnst nefnilega muna alveg ótrúlega miklu um þessa einu klukkustund. Það er bara [...]

 

september 2010
Þ Mi Fi L S
« des.    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930  

Switch to our mobile site