JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Færslur fyrir Blogg

Vetrartími

Nú er kominn vetrartími hjá okkur í Svíþjóð, og auðvitað í fleiri löndum. Nú í morgun færðum við klukkuna aftur um eina klukkustund. Nú er sem sagt bara eins tíma munur á Svíþjóð og Íslandi, sem er bara hið besta mál. Mér finnst nefnilega muna alveg ótrúlega miklu um þessa einu klukkustund. Það er bara [...]

Diskókúla?

Nei, ég segi nú bara svona… Málið er að Karitas fékk þá stæðstu kúlu, á ennið, sem ég hef séð og svo er diskó í skólanum hjá Tóta. Ákvað bara að skella þessu saman og fékk þá út þetta skemmtilega orð: diskókúla! Dóttir mín hafði einungis náð að vera á leikskólanum í tvær klukkustundir þegar [...]

Rafmagnslaust!

Jæja, þá er kominn sá tími ársins þegar rafmagnsleysin byrja að gera vart við sig… og í þessum skrifuðu orðum stendur það fyrsta yfir! Nú sitjum við hjónin umvafin kertum og höfum það voðalega notalegt saman! Ég sit og blogga á meðan Jósi fær sér einn kaldan. Þar sem maðurinn minn er kominn með gott [...]

Aðgerð og BS í tölvunarfræði

Komið öll blessuð og sæl. Nú er bloggið búið að vera í smá hvíld… og við skulum vona að það komist aftur á gott skrið! Amma Gunna kíkti í heimsókn til okkar þann 10. október síðastliðinn. Hún kom til okkar á sjálfan afmælisdaginn sinn – svo við ákváðum að bjóða henni upp á humar. Alltaf [...]

Til hamingju með daginn í gær amma Gunna

Elsku amma Gunna … Innilega til hamingju með daginn í gær! Vonum að dvölin hjá okkur í Svíþjóð verði góð. Ástarkveðja – kossar og knús, Anna, Jósi, Tóti og Karitas Guðrún

Helgin búin!

Nú er helginni að ljúka og ný skólavika tekur við… Helgin okkar er búin að vera voðalega róleg og notaleg. Við erum búin að njóta þess að hvíla okkur en svo höfum við líka verið talsvert utandyra. Hérna er búið að vera alveg tíbískt haustveður en það hefur ekki stoppað krakkana frá því að vilja [...]

Kräftor eru góðar!

Sælt verið fólkið! Við áttum alveg hreint frábæran laugardag með nágrönnum okkar. Á meðan karlarnir tæmdu bílskúrinn okkar, settu inn borð og stóla þá hittumst við konurnar og gerðum okkur fínar fyrir kvöldið. Krakkarnir léku sér úti langt fram á kvöld, við vissum næstum því ekki af þeim. Þetta var alveg hreint frábær Kräftskiva, sem [...]

Kräftskiva!

Komið nú öll blessuð og sæl! – Vonandi er allt gott að frétta af ykkur… Strax eftir hádegi í gær hringdi læknirinn, sem skoðaði Karitas á miðvikudaginn, og sagðist vera kominn með niðurstöður úr ræktun sem var tekin. Læknirinn sagði að það væri sýking í öndunarveginum og að Karitas þryfti að byrja á penicillini, enn [...]

Bæbæ nefkirtill!

Jæja gott fólk – er ekki kominn tími á smá uppfærslu? Hérna í Sverige heldur áfram að hausta og litadýrðin orðin eftir því. Trén eru ýmist gul, rauð eða græn – voðalega fallegt! Við erum búin að vera alveg einstaklega heppin með veður síðustu daga. Kalt þegar við leggjum af stað í skólann en orðið [...]

Äpplen och päron!

Sjáið hvað við eigum í garðinum okkar! Epli og perur – Ligga ligga lái! Nú er loksins komin helgi – og við ætlum við að njóta hennar í botn! Föstudagskvöld: DVD og popp! Laugardagur: Rólegheit. Tóti fer reyndar í afmæli, eins og hann er búinn að gera síðustu helgar. Sunnudagur: Arnar, Bergþóra og börn koma [...]

 

febrúar 2012
Þ Mi Fi L S
« jan.    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829  

Switch to our mobile site