JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

Árið 2009!

Skrifað af Anna þann 4. janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur –
Við skulum vona að árið 2009 verði okkur öllum farsælt og gott! :o )

Af okkur er bara allt gott að frétta – búin að hafa það alveg svakalega gott um jólin og áramótin.
Við hjónin erum komin á fullt í próflestri og það hefur bara gengið alveg ágætlega þrátt fyrir að krakkarnir eru ennþá í jólafríi; höfum bara þurft að skipuleggja tímann eftir því.
Krakkarnir eru að byrja aftur á frístundaheimilinu og í leikskólanum á morgun, eftir alveg heillangt jólafrí. Það verður voðalega gott fyrir þau að komast aftur í rútínu.
Tóti byrjar svo formlega í skólanum á sjálfan átta ára afmælisdaginn sinn, þ.e.a.s. á fimmtudaginn kemur. Hann er orðinn alveg svakalega spenntur og hlakkar mikið til að halda bekkjarafmæli. Við verðum nú að bíða aðeins með afmælisboðið þar sem síðstu próf og verkefnaskil foreldranna verða um miðjan janúar. Það er nú ekkert að því að halda upp á afmælið sitt svolítið seinna – er það nokkuð?

Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili…

Bestu kveðjur – kossar og knús,
Anna

Gleðileg jól & farsælt komandi ár!

Skrifað af Anna þann 22. desember 2008

Nú viljum við óska ykkur öllum gleðilegra jóla & farsældar á komandi ári!

jolamyndin2008

Hafið það alltaf sem allra best!

Jólakveðja -
Jóhann, Anna, Tóti & Karitas

Íslenskir stafir og iTunes fyrir mac

Skrifað af Josi þann 25. nóvember 2008

Ég útbjó scriptu sem lagar íslenska stafi í iTunes á mac þegar búið er að færa lög inn frá Windows tölvu. Þetta hefur verið vanda mál fyrir marga Maca notendur og eina lausnin hefur verið að keyra „Search and replace“ scriptu fyrir hvern staf og hvert tag. Þessi scripta lagar alla vandamála stafi (ð,Ð,þ,Þ,ý og Ý) sjálfvirkt og getur einnig lagað öll tögin í einu. Ég tók þá ákvörðun að hún lagar aðeins það sem valið er, þannig að merkja verður (gera lögin blá) öll lög sem scriptan á að kíkja á og laga.

Scriptuna má nálgast hér að neðan:

fix_icelandic_itunes

Kveðja

JOSI

Lýsing á scriptu

„Laga íslensku“ V. 1.0

——Bakgrunnur——
Þessi skripta lagar Íslenska stafi í iTunes fyrir Mac.
Vandamálið er að þegar Windows skrifar í headerinn á tónlistarskrám þá notast hann við annað stafa sett en Mac.
Þetta gerir það að verkum að Íslensku stafirnir ð,Ð,þ,Þ,ý og Ý byrtast makka notendum vitlaust.
Þessi skripta fer í gegnum þau lög sem eru valin (Merkt blá) í iTunes og lagar öll tög eða það tag sem þú vilt laga.

——Uppsettning——
Til þess að setja scriptuna upp þarf að kópera skránna (Laga íslensku.scpt) í
/Users/Þitt_Notendanafn/Library/iTunes/Scripts

Ef að mappan Scripts er ekki til þarf að búa hana til, kópera skránna og endurræsa iTunes.
Þá ætti að birtast Script ícon í menu barnum sem þú velur til að ræsa skriptuna.

——Notkun——
Þegar búið er að setja scriptuna upp þarf að velja þau lög sem þú vilt laga (gera þau blá) fara síðan í menubarinn og velja scriptu iconið og smella á „Laga íslensku“. Þá kemur upp valmynd sem gerir þér kleift að velja hvaða tag skriptan á að laga. Þessi skripta lagar eftirfarandi tög: „Öll tög“, „Titill“, „Plata“, „Flytjandi“, „Flytjandi plata“, „Höfundur“, „Komment“.

Ef einhver vandamál koma upp er hægt að hafa samband

Notkun þessarar skriptu er á eigin ábyrgð þó svo að búið sé að prufa hana á yfir 1000 Íslenskum lögum án nokkurar vandræða..

Laugardagar = nammidagar

Skrifað af Anna þann 22. nóvember 2008

Þá er aftur kominn laugardagur – og börnin bíða spennt eftir sjoppuferð!
Karitas komst mjög fljótt upp á lagið með þessar sjoppuferðir og vill kaupa allt sem hún sér. Núna situr alltaf annað okkar úti í bíl með Karitas á meðan hitt fer með Tóta inn í sjoppuna. Hún sættir sig vonandi við það fljótlega… Hahahha…

Við áttum svo notalega kvöldstund með Tóta í gær, horfðum nefnilega saman á WALL-E. Tóti var alveg heillaður af þessari mynd og hló sig nánast máttlausan af vissum atriðum. Svo gaman að eyða smá ‘quality-time‘ með honum! Tóti var búinn að bíða svo spenntur eftir að sjá þessa mynd, þar sem hann var búinn að heyra svo mikið um hana frá skólafélögum sínum. Jóhann hafði líka gefið honum WALL-E vélmenni sem vakti mikla lukku.

Af okkur er annars bara allt gott að frétta.

Prjónaði kjól!

Skrifað af Anna þann 20. nóvember 2008

Hæ allir!

Langaði bara að monta mig aðeins – var nefnilega að prjóna kjól! Ég hef ekki prjónað eina flík síðan ég kláraði lokaverkefnið mitt í 10. bekk – en ákvað að taka upp prjónana þegar mamma kíkti í heimsókn. Mamma var hjá okkur í viku og ákvað að leiðbeindi mér aðeins í gegnum prjónaskapinn – takk fyrir það elsku mamma mín!

Hér sjáið þið mynd af frumrauninni – mont mont mont!

Jæja, hef ekkert meira að segja í bili – hafið það sem allra best!

Kossar og knús,
Anna

Gekk vel!

Skrifað af Anna þann 5. nóvember 2008

Jæja, eins og þið hafið kannski lesið þá fór Karitas í nefkirtlatöku í gær. Aðgerðin gekk bara vel!
Það kom okkur foreldrunum reyndar mjög á óvart hversu lengi hún var inni í aðgerðinni, eða u.þ.b. 50 mínútur. Við vorum mætt klukkan korter yfir sjö í gærmorgun og vorum ekki komin aftur út af spítalanum fyrr en klukkan að verða hálf fjögur síðdegis. Við vorum mun lengur en áætlað var vegna þess hversu mikið blóð hafði farið niður í maga, bæð í aðgerðinni sjálfri og á meðan hún svaf. Hún hélt engu niðri greyið og gerði því fátt annað en að sofa og gubba þennan tíma sem við vorum á spítalanum. Hún var alveg rosalega dugleg og er bara algjör hetja í okkar augum!
Það er svo gott að þessi aðgerð er yfirstaðin – og nú er bara að vona að hún verði hressari!

Ég setti inn nokkrar myndir frá aðgerðardeginum inn á heimasíðu barnanna. Ég setti ekki inn neinar myndir sem viðkvæmir ekki þola – svo endilega kíkið á litlu hetjuna! Þið getið nálgast myndirnar hér.

Jæja, ég vildi bara láta ykkur vita hvernig gekk…

Bestu kveðjur – kossar og knús,
Anna

Nefkirtlataka!

Skrifað af Anna þann 4. nóvember 2008

Jæja, þá er komið að því!

Núna eru allir á heimilinu að vakna og undirbúa sig fyrir langan dag – þar sem Karitas er að fara í nefkirtlatökuna sína á eftir. Hún á að vera mætt á spítalann klukkan 07:15. Við þurfum því að fara með Tóta greyið á frístundaheimilið klukkan hálf sjö! Æi – ég verð að segja að ég er alveg svakalega fegin að við fáum að mæta snemma, þar sem Karitas er búin að vera fastandi síðan á miðnætti í nótt.

Við vonum innilega að þessi aðgerð gangi vel og að hún verði hressari eftir þetta
- elsku litla dúllan okkar!

Jæja, ég verð að fara halda áfram að gera okkur klár!

Kossar og knús,
Anna

Gleðilega hrekkjavöku!

Skrifað af Anna þann 31. október 2008

Gleðilega hrekkjavöku kæru vinir – mohahahhahhaahaaaa!

Hér í Sverige er hrekkjavakan í algleymingi og við mæðginin skelltum okkur auðvitað út í stuttan göngutúr. Tóti var afar duglegur að dingla á dyrabjöllum í hverfinu og segja: „bus eller godis!“. Hann þurfti ekki að gera neinn grikk – heldur bættist alltaf bara meira nammi í pokann hans. Það þótti honum nú ekki leiðinlegt! Karitas fékk meira að segja nammisendingu frá einni fóstrunni sinni á leikskólanum. Svo krúttlegt! Skvísan var ekki lengi að setja sleikjóinn í munninn, eftir að við komum heim. Gott að eiga góða tannbursta á dögum sem þessum!

Jæja, læt þetta duga í bili…

Bestu hrekkjavökukveðjur til ykkar!
Kossar og knús,
Anna

U2 Beautiful Day live í Slane Castle 2001

Skrifað af Josi þann 30. október 2008

Fann þetta myndband og bara varð að setja það inn þar sem ég og Anna vorum þarna líka. Þvílíkar minningar!!

http://www.josi.is/wp-content/uploads/2008/10/slane.flv

Vetrartími

Skrifað af Anna þann 26. október 2008

Nú er kominn vetrartími hjá okkur í Svíþjóð, og auðvitað í fleiri löndum. Nú í morgun færðum við klukkuna aftur um eina klukkustund. Nú er sem sagt bara eins tíma munur á Svíþjóð og Íslandi, sem er bara hið besta mál. Mér finnst nefnilega muna alveg ótrúlega miklu um þessa einu klukkustund.

Það er bara allt ágætt að frétta af okkur. Helgin byrjaði samt ekkert svakalega vel, þar sem fóstrurnar hringdu klukkan tíu á föstudagsmorguninn og sögðu okkur að Karitas hefði dottið. Karitas hafði fengið alveg rosalega stóra kúlu á ennið, þá stærstu sem ég hef séð. Fóstrurnar voru svolítið óvissar og hringdu því í mig, þar sem litlu munaði að það hefði sprungið fyrir. Ég fór og sótti hana um leið og samtalinu var lokið – og mér brá virkilega við að sjá hvernig litla prinsessan mín leit út. Karitas var enn í sjokki þegar ég kom en var fljót að ná sér, ótrúlegt hvað það er seigt í þessari litlu stúlku. Getum verið virkilega þakklát fyrir það!
Hér sjáið þið hornið á litlu prinsessunni okkar:

Tóti er alltaf jafn hress og kátur. Honum gengur vel í skólanum og bíður spenntur eftir haustfríinu, sem er í næstu viku. Þar sem við þurfum að lesa fyrir próf þá þurfa krakkarnir að vera á frístundaheimilinu og í leikskólanum. Þeim finnst það nú ekki leiðinlegt, svo ég er ekki með samviskubit!

Já, og svo má ekki gleyma að Jósi braut glerin í gleraugunum sínum í gær! Við ætlum að fara með þau í viðgerð í dag og kíkja á gjarðir fyrir aukagleraugu. Slæmt þegar eitthvað svona kemur fyrir og maður á ekkert til vara…

Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili!

Kossar og knús,
Anna

 

september 2010
Þ Mi Fi L S
« des.    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930  

Switch to our mobile site