Skrifað af Anna þann 24. október 2008
Nei, ég segi nú bara svona… Málið er að Karitas fékk þá stæðstu kúlu, á ennið, sem ég hef séð og svo er diskó í skólanum hjá Tóta. Ákvað bara að skella þessu saman og fékk þá út þetta skemmtilega orð: diskókúla!
Dóttir mín hafði einungis náð að vera á leikskólanum í tvær klukkustundir þegar fóstrurnar hringdu og sögðu að hún hefði dottið. Þær voru hálf smeikar og sögðu kúluna, sem hún hafði fengið á ennið, vera eina þá stæðstu sem þær höfðu séð án þess að það hefði komið gat. Þær báðu mig að koma og auðvitað brunaði ég upp í leikskóla og náði í prinsessuna mína.
Ég verð að segja að ég fékk vægt sjokk þegar ég kom að henni – kúlan tók hálft ennið! Við erum búin að fylgjast mjög vel með henni í dag, þar sem það er alltaf hætta á heilahristingi þegar höfuðhögg á sér stað. Karitas er búin að vera hin eðlilegasta í dag. Núna undir kvöld þá hefur kúlan dregist aðeins saman – eða kannski er það bara heftiplásturinn sem hefur þessi áhrif…
Sjáið hornið á litlu prinsessunni minni -


Eins og ég skrifaði hérna áðan þá er Tóti á diskó í skólanum. Nú er hálftími eftir og hann verður örugglega vel upptjúnnaður og hálf heyrnalaus þegar hann kemur heim. Svíarnir eru nú alveg met því það ervíst skylda að gefa krökkunum eynatappa og svo eru það þau sem ráða hvort þau setja þá í eyrun. Svíarnir klikka ekki á svona atriðum!
Jæja
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Josi þann 23. október 2008
Jæja, þá er kominn sá tími ársins þegar rafmagnsleysin byrja að gera vart við sig… og í þessum skrifuðu orðum stendur það fyrsta yfir!
Nú sitjum við hjónin umvafin kertum og höfum það voðalega notalegt saman! Ég sit og blogga á meðan Jósi fær sér einn kaldan.
Þar sem maðurinn minn er kominn með gott ‘backup‘ kerfi fyrir tölvunar þá getum við notað tölvurnar okkar og internetið í u.þ.b. þrjár klukkustundir, eftir að rafmagnsleysi hefst. Ekki slæmt að lifa á tækniöld og eiga rafmagns- og tölvugúru fyrir mann! Við vonum samt að þetta fyrsta rafmagnsleysi haustsins verði ekkert svakalega langdregið…
Hef þetta ekki lengra í bili – þarf að spara batteríið!
Kveðja úr rafmagnsleysinu í Värsås,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Athugasemd (1)
Skrifað af Anna þann 20. október 2008
Komið öll blessuð og sæl.
Nú er bloggið búið að vera í smá hvíld… og við skulum vona að það komist aftur á gott skrið!
Amma Gunna kíkti í heimsókn til okkar þann 10. október síðastliðinn. Hún kom til okkar á sjálfan afmælisdaginn sinn – svo við ákváðum að bjóða henni upp á humar. Alltaf gott að borða humar í kreppu! Síðan þá hafa dagarnir bara liðið hver á fætur öðrum og við búin að hafa það voðalega notalegt saman. Við vorum mjög dugleg að dúlla okkur heimavið í þetta skiptið og þá bæði innan og utandyra. Við keyrðum reyndar til Jönköping í gær bara til að fá smá tilbreytingu.
Í morgun kvöddu gormarnir ömmu Gunnu, áður en þau fóru í skóla og leikskóla. Verður voðalega skrítið fyrir þau að mæta heim í dag og engin amma Gunna til að taka á móti þeim. En svona er bara lífið í Sverige, gestir koma og fara. Nú styttist reyndar óðfluga í næstu ömmu, sem kemur til okkar þann 13. nóvember.
Karitas er búin að fá aðgerðardag fyrir nefkirtlatökuna; 4. nóvember næstkomandi. Ég er virkilega búin að berjast fyrir því að eitthvað verði gert í hennar málum, þar sem hún er krónískt kvefuð, en það voru afar blendnar tilfinningar loksins þegar tilkynningin um aðgerðina barst. Ég vona heitt og innnilega að nefkirtlatakan muni hjálpa henni, þar sem hún er alltaf kvefuð greyið. Hún er auðvitað kvefuð núna og varð það einungis fjórum dögum eftir að hún hætti á penicillininu, sem er met. Penicillinið var greinilega ekkert að virka á hana! Nú er bara að vona það besta!
STÓRAR FRÉTTIR!
Júhúúúúúúúú! Jóhann er búinn að fá BS.ritgerðina sína samþykkta!
Nú á hann bara eftir að skila henni inn, á sérstakt forrit, á bókasafninu sem síðan prentar hana út og bindur inn! Innilega til hamingju með þetta ástin mín, þú ert búinn að standa þig eins og hetja!
Nú er bara að bíða eftir prófskírteininu og þá ertu kominn með BS í tölvunarfræði!
Læt þetta duga í bili!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Athugasemdir (3)
Skrifað af Josi þann 11. október 2008
Elsku amma Gunna …
Innilega til hamingju með daginn í gær! Vonum að dvölin hjá okkur í Svíþjóð verði góð.
Ástarkveðja – kossar og knús,
Anna, Jósi, Tóti og Karitas Guðrún
Flokkur: Blogg | Tög: Afmæli
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Anna þann 5. október 2008
Nú er helginni að ljúka og ný skólavika tekur við…
Helgin okkar er búin að vera voðalega róleg og notaleg. Við erum búin að njóta þess að hvíla okkur en svo höfum við líka verið talsvert utandyra. Hérna er búið að vera alveg tíbískt haustveður en það hefur ekki stoppað krakkana frá því að vilja fara út; þeim finnst nefnilega ekkert verra þó það sé blautt og laufblöð út um allt. Það má alltaf nota þessi blessuðu laufblöð til að skreyta sandkökur og kastala…
Síðastliðin vika var alveg ótrúlega fljót að líða; þrátt fyrir að ekkert stórfenglegt hafi verið um að vera hjá okkur. Bara allt við það sama…
Gunna tengdamamma er búin að boða komu sína til okkar í lok næstu viku. Hún ætlar að nota afmælisdaginn sinn til að ferðast – og þá eins gott að við verðum með góðan mat fyrir afmælisbarnið þegar hún mætir á svæðið!
Silla vinkona á svo afmæli á morgun – og við óskum henni, fyrirfram, til hamingju með afmælið!
Jæja, ég ætla ekki að hafa það lengra í bili…
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Anna þann 29. september 2008
Sælt verið fólkið!
Við áttum alveg hreint frábæran laugardag með nágrönnum okkar. Á meðan karlarnir tæmdu bílskúrinn okkar, settu inn borð og stóla þá hittumst við konurnar og gerðum okkur fínar fyrir kvöldið. Krakkarnir léku sér úti langt fram á kvöld, við vissum næstum því ekki af þeim.
Þetta var alveg hreint frábær Kräftskiva, sem við munum aldrei gleyma. Gaman að umgangast svona skemmtilegt fólk, borða saman, syngja og dansa!


Tóti greyið var reyndar svo óheppinn að klemma sig á laugardagskvöldið. Hann var að laga skóinn sinn, hélt sér í hurðarkarminn inni í bílskúr, en þá kom gegnumtrekkur og hurðinn skelltist aftur og það beint á litla putta! Við kældum fingurinn vel en þar sem hann var mjög bólginn á sunnudeginum þorðum við ekki öðru en að fara og láta lækni kíkja á hann. Læknirinn sagði að puttabeinið gæti vel hafa skaddast en það væri ekkert hægt að gera í því og bólgan myndi svo hverfa á viku til tíu dögum.
Ég fór með Karitas í heyrnarpróf í morgun og það kom vel út. Allt þetta kvef hefur greinilega ekki haft nein áhrif á heyrnina. Mikið er mér létt!
Karitas stóð sig alveg eins og hetja! Hún er farin að sætta sig betur við að fara á sjúkrahúsið, segir samt alltaf „Nei ekki inn!“ þegar við röltum okkur frá bílastæðinu. Núna er hún komin á leikskólann og nýtur þess að stjórna bæði fóstrum og börnum! Hihihihi…
Hafið það nú sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Athugasemd (1)
Skrifað af Anna þann 27. september 2008
Komið nú öll blessuð og sæl!
- Vonandi er allt gott að frétta af ykkur…
Strax eftir hádegi í gær hringdi læknirinn, sem skoðaði Karitas á miðvikudaginn, og sagðist vera kominn með niðurstöður úr ræktun sem var tekin. Læknirinn sagði að það væri sýking í öndunarveginum og að Karitas þryfti að byrja á penicillini, enn og aftur! Læknirinn sagði að litla daman hefði áður fengið þessa sýkingu og að nú þyrfti að finna penicillin sem myndi, vonandi, vinna á þessari sýkingu í eitt skipti fyrir öll.
Það ætla ég svo sannarlega að vona – og að þessari eilífu sjúkrasögu, varðandi kvef og hósta, fari þá að ljúka!
Út í annað:
Í kvöld ætlum við og a.m.k. fjórar nágrannafjölskyldur að halda Kräftskiva í bílskúrnum okkar. Þetta er sænskur siður þar sem fólk kemur saman og borðar Kräftor (e. Crawfish).


Ef ég þekki nágranna okkar rétt verður þetta alveg bráðskemmtileg kvöldstund. Við ákváðum að halda þetta í bílskúrnum okkar þar sem Karitas mun líklegast sofna snemma og þá getum við bara tekið „barnapíuna“ með okkur út í bílskúr. Þetta er sameiginleg veisla þar sem allir koma með sínar eigin Kräftor en sameiginlegt meðlæti. Ekkert jafnast á við góða granna!
Hafið það sem allra best í dag!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Anna þann 25. september 2008
Jæja gott fólk – er ekki kominn tími á smá uppfærslu?
Hérna í Sverige heldur áfram að hausta og litadýrðin orðin eftir því. Trén eru ýmist gul, rauð eða græn – voðalega fallegt! Við erum búin að vera alveg einstaklega heppin með veður síðustu daga. Kalt þegar við leggjum af stað í skólann en orðið fínasta veður seinni partinn!
Ég verð að segja ykkur að ég hringdi niður á barnadeildina, á KSS sjúkrahúsinu, í gærmorgun. Ég er orðin svo langþreytt á þessu kvefi, hósta og öllu því sem fylgir – hjá henni litlu Karitas. Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að hún er alltaf svona. Hjúkkan sem ég talaði við vildi endilega fá okkur mæðgurnar í skoðun, vegna fyrri sögu. Læknirinn sem tók á móti okkur var alveg á því að Karitas þyrfti að hitta Háls-, nef- og eyrnalækni og það sem fyrst. Læknirinn skrifaði beiðni inn á HNE og við vorum mættar þangað inn eftir hálftíma. Hugsa sér að við áttum ekki að fá tíma þar fyrr en eftir 10 vikur!
Þegar við hittum HNE-lækninn þá sagði hann að Karitas hefði öll einkenni þess að nefkirtillinn væri eitthvað að trufla hana. Hann taldi að þessi aðgerð gæti hjálpað henni alveg heilmikið, en það væri auðvitað ekki hægt að lofa því upp á hundað prósent. Hún er sem sagt komin á biðlista og aðgerðin verður gerð innan þriggja mánaða. Þetta er sama barnið sem læknunum þótti ekki nauðsynlegt að hitta fyrir nokkrum vikum síðan…
Þá vitið þið það!
Nú er kominn háttatími á prinsessuna – og þegar hún er sofnuð ætlum ég og Anna vinkona að skella okkur út í göngu!
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Anna þann 19. september 2008
Sjáið hvað við eigum í garðinum okkar!
Epli og perur – Ligga ligga lái!
Nú er loksins komin helgi – og við ætlum við að njóta hennar í botn!
Föstudagskvöld: DVD og popp!
Laugardagur: Rólegheit. Tóti fer reyndar í afmæli, eins og hann er búinn að gera síðustu helgar.
Sunnudagur: Arnar, Bergþóra og börn koma í kaffi, spjall og leik. Verður voðalega gaman að hitta þau!
Hafið það sem allra best – og góða helgi!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Athugasemd (1)
Skrifað af Anna þann 18. september 2008
Hej allihop!
Ég varð bara að láta ykkur vita að Karitas fór á leikskólann í dag! Eftir pirripú-bloggið mitt um daginn, þá er eins og „hitapaddan“ hafi ekki þorað að dvelja lengur í skvísunni. Hún var hin hressasta seinni partinn í gær og alveg eldhress í morgun. Hún er samt ennþá kvefuð og hóstandi, en það eru víst bara eitthvað sem tilheyrir árstíðinni. Nú vonum við bara að Karitas nái þessu úr sér; og það alveg sjálf.
Karitas var greinilega orðin pínu þreytt á gamla settinu. Þegar ég spurði hana í morgun hvort við ættum ekki að finna til föt og setja fínt í hárið, þá brosti hún breitt og sagði:
„Karitas fara út a(ð) leika“.
„Karitas (k)núsa Tínu líka“.
Hún vissi nákvæmlega hvert hún var að fara því Tína er ein af fóstrunum á leikskólanum…
Ég skrifaði í eitthvert bloggið að Tóti væri farinn að lesa, og það bara þokkalega vel. Ég er svo montin af honum að ég varð að skella inn myndbandi af honum að lesa heima. Þið getið kíkt á það ef þið smellið hér.
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd