Skrifað af Anna þann 18. september 2008
Hej allihop!
Ég varð bara að láta ykkur vita að Karitas fór á leikskólann í dag! Eftir pirripú-bloggið mitt um daginn, þá er eins og „hitapaddan“ hafi ekki þorað að dvelja lengur í skvísunni. Hún var hin hressasta seinni partinn í gær og alveg eldhress í morgun. Hún er samt ennþá kvefuð og hóstandi, en það eru víst bara eitthvað sem tilheyrir árstíðinni. Nú vonum við bara að Karitas nái þessu úr sér; og það alveg sjálf.
Karitas var greinilega orðin pínu þreytt á gamla settinu. Þegar ég spurði hana í morgun hvort við ættum ekki að finna til föt og setja fínt í hárið, þá brosti hún breitt og sagði:
„Karitas fara út a(ð) leika“.
„Karitas (k)núsa Tínu líka“.
Hún vissi nákvæmlega hvert hún var að fara því Tína er ein af fóstrunum á leikskólanum…
Ég skrifaði í eitthvert bloggið að Tóti væri farinn að lesa, og það bara þokkalega vel. Ég er svo montin af honum að ég varð að skella inn myndbandi af honum að lesa heima. Þið getið kíkt á það ef þið smellið hér.
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Anna þann 17. september 2008

Http://toti.josi.is
Nú er búið að uppfæra toti.josi.is -
Kíkið endilega inn…
Vonum að ykkur líki þetta nýja útlit og að ykkur finnist það notendavænt!
Kossar og knús,
Anna og Jósi
Flokkur: Blogg
|
Athugasemd (1)
Skrifað af Anna þann 16. september 2008
Ohhh – þarna mistókst þetta hjá mér… ég bloggaði ekkert í gær!
Vonandi er allt gott að frétta af ykkur. Hérna er ástandið ekki alveg það ákjósanlegasta. Karitas er nefnilega orðin veik – enn á ný. Hún er búin að vera kvefuð í nokkrar vikur en svo kom hitinn í gærkvöldi. Aumingja barnið! Við erum búin að reyna að fá tíma fyrir hana hjá Háls-, nef- og eyrnalækni en það er bara hægara sagt en gert. Það þarf nefnilega að láta kíkja á hana þar sem hún fær mjög oft slæm kvef og hálsbólgur, sem virðast ekki gefa sig fyrr en hún fær Pencillin. Það eru nú aðeins fleiri ásæður fyrir því að við viljum hitta sérfræðing á þessu sviði, m.a. hrotur. Það er voðalega slæmt þegar barn í þessu ástandi, og með hennar læknasögu, ekki kemst að fyrr en eftir tíu vikur. Finnst ykkur þetta ekki svolítið sérstakt? Ég hef áreiðanlegar og góðar heimildir fyrir því að ef barn í hennar ástandi og með hennar sögu myndi mæta til HNE-sérfræðings á Íslandi þá væri búið að gera eitthvað í málinu.
Hún á að mæta í heyrnapróf í lok september en mun líklegast ekki geta mætt þar sem hún er búin að vera með langvarandi kvef, sem hefur þá áhrif á niðurstöðurnar. En ég spyr mig… hvernig eigum við að geta mætt í heyrnapróf þegar Háls-, nef- og eynasérfræðingunum finnst ekki stór ástæða til að hitta hana fyrr en eftir tíu vikur?
Ég á von á símtali, á næstu dögum, frá þeim aðila sem mun sjá um heyrnaprófið hennar. Það verður virkilega spennandi og fróðlegt að heyra hvað honum/henni finnst um þetta mál og hvað verði svo gert í því. Bara svo þið séuð ekki að hafa áhyggjur þá er þetta heyrnapróf ekkert til að hafa áhyggjur af – okkur finnst hún alveg heyra vel. Það er víst nauðsynlegt að fylgjast með heyrninni eins og hverju öðru.
Varð bara aðeins að koma þessum pirringi frá mér – pirri pirri pirripú!
Vona samt að þið séuð öll hress og kát!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Athugasemd (1)
Skrifað af Anna þann 14. september 2008
Noh – barasta bloggað tvo daga í röð! Ætli það sé nýja útlitið á síðunni sem gerir þetta að verkum?
Jæja þá…
Nú er farið að hausta í Sverige. Laufin farin að falla – og það gæti vel farið svo að slátturinn í dag verði sá síðasti á þessu ári. En það er reyndar aldrei að vita, þar sem veðrið er frekar óútreiknanlegt. Við erum a.m.k. að fara út í haustgarðvinnuna okkar á eftir. Við reynum nefnilega alltaf að koma garðinum í gott ástand fyrir veturinn.
Ég verð að segja að haustið kom óvenju snögglega þetta árið. Hér var hiti, sól og grasið og laufin fallega græn fyrir um tveimur vikum síðan. Síðustu vikur hefur ringt einhver ósköp og hitinn er farinn að nálgast núllið á næturnar. Hér voru aðeins fjórar gráður klukkan átta í morgun. Brrrr…
Við fjölskyldan erum heldur betur búin að taka haustkvefið og hóstann með trompi; búið að sitja í okkur ansi lengi eða síðan við komum heim frá Íslandi. Þetta fer nú vonandi allt að koma hjá okkur, þar sem við erum orðin ansi þreytt á þessu ástandi.
Við látum þetta þó ekki stoppa okkur frá því að mæta í skóla og leikskóla. Svona er þetta bara svo oft á haustin!
Tóti er voðalega ánægður í skólanum. Hann kom okkur þvílíkt á óvart hvað varðar lesturinn. Hann var farinn að lesa aðeins síðastliðinn vetur en núna sagði kennarinn hans að hann væri að standa sig mjög vel. Það eru víst tvær lestrarbækur í gangi í bekknum og hann, ásamt örfáum öðrum, er með erfiðari bókina. Við foreldrarnir erum heldur betur stolt og ánægð með okkar mann.
Tóti er byrjaður í reiðskóla og finnst það alveg rosalega skemmtilegt. Hann mætir þangað einu sinni í viku, bæði í reiðtíma og fræðslu. Mömmunni finnst nú ekki leiðinlegt að sonurinn skuli sýna hestum áhuga enda er hún sjálf búin að vera með hestadellu frá því að hún var lítil.
Tóti er svo líka byrjaður í skátunum, sem „nying“. Hann mætir á skátafundi á miðvikudögum og líkar það vel.
Af Karitas er allt gott að frétta fyrir utan hósta og kvef. Ég efast hreinlega um að við myndum þekkja hana án hósta og kvefs, þar sem hún er oftar en ekki í þannig ástandi.
Hún er alveg hæstánægð á leikskólanum. Hún er byrjuð á nýrri deild, sem heitir „Mellangården“, og bíður bara spennt eftir að komast þangað á hverjum morgni. Hún á orðið mjög góða vini og vinkonur. Hún leikur samt mest við jafnöldrur sínar, þær Saga og Charleen, og talar oft um þær þegar hún kemur heim. Eins og ég segi þá er hún alveg rosalega ánægð á leikskólanum.
Þegar við komum heim frá Íslandi byrjaði Karitas að sofa í „stórustelpurúmi“ og það hefur bara gengið eins og í sögu. Henni fannst ekkert mál að kveðja rimlarúmið. Núna sofnar hún útfrá Perlunum hennar Birgittu Haukdal – alveg eins og Tóti stóri bróðir gerir.
Þið getið skoðað myndir af þeim Tóta og Karitas ef þið smellið hér.
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili…
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Anna þann 13. september 2008
Komið nú öll blessuð og sæl -
Nú erum við komin með nýtt útlit á JOSI.IS ásamt því að vera komin með nýjan vefþjón. Við erum voðalega ánægð með þessa breytingu – og það væri gaman að heyra ykkar álit.
Myndinar, sem birtast fyrir ofan bloggið, tókum við á hringferð okkar um Ísland sumarið 2008. Þetta eru brot úr tíu ljósmyndum, sem birtast handahófskennt. Urðum auðvitað að hafa Íslenskar myndir á blogginu!
Við vonum að þessar breytingar verði til þess að við bloggum meira.
Hafið það nú sem allra best!
Kossar og knús,
Anna og Jósi
Flokkur: Blogg
|
Athugasemdir (2)
Skrifað af Anna þann 17. ágúst 2008
Elsku Svennalingurinn okkar -
Innilega til hamingju með 2ja ára afmælið þitt! Munaði svo ótrúlega litlu að við gætum samfagnað með þér – en svona er þetta þegar maður á heima í útlöndum og skólarnir að hefjast. En þið getið bókað að við verðum með ykkur í huganum í dag! ![[:kiss:]](/images/smile/smile15.gif)
Njótið ykkar í botn og við bíðum spennt eftir afmælismyndum!
Afmæliskossar og knús,
Anna frænka og co.
***
Fyrir þá sem vilja lesa ferðasöguna okkar þá er ég ennþá að mana mig upp í að skrifa hana. Þetta verður líklegast svakalega löng færsla. Set hana inn vonbráðar.
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Flokkur: Blogg | Tög: Afmæli
|
Athugasemdir (3)
Skrifað af Anna þann 10. maí 2008
Komið nú öll blessuð og sæl!
Hér er heldur betur búið að vera nóg að gera síðustu vikurnar. Karitas Guðrún er búin að vera veik: hiti, kvef og mikill langvarandi hósti. Við erum búin að vera með hana inni á spítala í blóðprufum og skoðunum. Læknarnir skrifuðu svo lyfseðla fyrir tveimur astmalyfjum – telja nefnilega að hún sé með astma. Mér finnst það nú voðalega skrýtið og mér finnast lyfin ekkert virka á hana þó hún sé búin að vera á þeim í dágóðan tíma núna – en ég er nú enginn sérfræðingur. Ég frétti svo í gær að Kíghósti er að ganga hérna í Värsås. Það finnst mér nú betri greining – þó hún sé nú búin að fá bólusetningu gegn honum (en það eru líka börnin sem eru að fá hann hérna í hverfinu). Ég er búin að lesa mér til og mér finnast einkennin passa mjög vel við dóttur mína – sérstaklega þar sem hún er mun verri af hóstanum á næturnar og fær þá mikil hóstaköst. Við fórum auðvitað eftir ráðum læknisins og gáfum henni astmalyf við þessum hóstaköstum en lyfin virka bara ekki neitt. Á mánudaginn ætla ég að hringja enn eina ferðina niður á spítala og greina frá Kíghóstanum og segja að þessi lyf hjálpi henni ekki neitt … astminn ætti nú að verða betri fljótlega eftir að hafa fengið púst!?!?!?
Aðrar fréttir eru þær að Tóti er búinn að missa sína þriðju tönn – og í þetta skipti var það vinstri framtönnin hans. Þetta tannleysi fer honum bara þónokkuð vel – og þið getið séð myndir af honum ef þið smellið hér.
Tóti fékk eyrnabólgu síðastliðinn mánudag og er búinn að vera á penicillini í fimm daga. Hann missti því af fyrstu fótboltaæfingunni sinni, vegna þess hve slæmur hann var í eyranu, en við fórum auðvitað og horfðum á. Hann fer því hress og kátur á mánudaginn – með flottu legghlífarnar, sokkana og takkaskóna sína!
Síðustu vikuna eða svo er búið að vera alveg frábært sumarveður hérna hjá okkur: heiðskýrt, sól og u.þ.b. 20 gráður í forsælu. Gærdagurinn var reyndar bestur með 23,5 gráðum í forsælu og algjörri bongóblíðu í bakgarðinum okkar – og helgin á víst að verða betri! Hér verður heldur betur grillað um helgina og leikið utandyra … ![[;)]](/images/smile/smile2.gif)
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili – bara örstutt update af okkur!
Hafið það sem allra best!
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Flokkur: Blogg
|
Athugasemd (1)
Skrifað af Anna þann 24. apríl 2008
Já, gleðilegt sumar gott fólk!
Nú er sumarið formlega gengið í garð … þó enn sé bara vor í lofti. Hérna eru búnar að vera um 13 gráður í forsælu síðstu vikuna eða svo – og við tökum því auðvitað fagnandi. Mjög fallegt vorveður!
Krakkarnir sjást ekki innandyra fyrr en undir kvöldmat … en þá þarf reyndar að kalla nokkrum sinnum svo Tóti mæti áður en maturinn kólnar. Karitas er enn sem komið er voðalega þægileg að þessu leiti – oftast tilbúin að setjast að snæðingi og reyndar oft farin að bíða eftir matnum.
Ég get svarið fyrir að þau eru bæði komin með oggu poggu lit í andlitin sín – þó maður noti sólarvörn nr. 20 óspart á andlit og eyru. Ég er alls ekki að segja að þau séu orðin brún … sést bara að þau eru búin að vera mikið utandyra. ![[:D]](/images/smile/smile4.gif)
Ég vil þakka ömmu Gunnu og afa Tóta kærlega fyrir börnin. Rosalega flottar sumargjafir! Við tókum smá forskot á sæluna og leyfðum þeim að opna gjafirnar sínar einum degi fyrir Sumardaginn fyrsta – og þær vöktu þvílíka lukku. Tóti fékk Wii tölvu frá þeim en Karitas fékk prinsessu-garðsett. Þið getið séð nýjar myndir af Karitas með því að smella hér – það er voðalega erfitt að ná myndum af Tóta þessa dagana en ég skal reyna að taka nokkrar af honum og skella þeim inn við fyrsta tækifæri. ![[;)]](/images/smile/smile2.gif)
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili – vonandi njótið þið dagsins í botn.
Hérna verður hið fínasta veður í dag og því munum við örugglega grilla í tilefni dagsins!
Bestu kveðjur –
Kossar og knús,
Anna ![[:)]](/images/smile/smile1.gif)
Flokkur: Blogg
|
Athugasemdir (3)
Skrifað af Anna þann 19. apríl 2008
Í dag er heldur betur vor í lofti!
Á aðeins nokkrum dögum er brumið á trjánum farið að opnast – og það er svoo fallegt að sjá ljósgræna slikju á trjánum.
Vorverkin hófust formlega á okkar heimili í dag. Ég dreif mig í að þvo gluggana bæði að utan og innan! Mikið líður mér vel eftir þessa skorpu! Það má svo örugglega finna sér eitthvað meira vorlegt til dundurs í garðinum á næstu dögum, t.d. arfatínslu eða eitthvað þvíumlíkt. Krökkunum finnst nú ekki leiðinlegt að vera í kringum okkur þegar við erum úti að vinna eitthvað – og þá er nú aldeilis gott að nýta tímann.
Krakkarnir eru hressir, kátir og njóta vorveðursins. Karitas elskar að leika sér úti í sandkassa á meðan Tóti brunar um á hinum ýmsu faratækjum, þ.e. rafmagnsbíl, rafmagnshlaupahjóli eða hjóli. Svo er hann líka orðinn voðalega duglegur á línuskautum.
Það eru nokkrar nýjar myndir á heimasíðu barnanna, þið getð séð þær ef þið smellið hér.
****
Gulla frænka á 30 ára stórafmæli í dag og við óskum henni auðvitað innilega til hamingju með daginn!
Hafu það nú sem allra best í dag!
Afmæliskossar og knús,
Anna, Jósi, Tóti & Karitas
Flokkur: Blogg
|
Skrifa athugasemd
Skrifað af Josi þann 18. apríl 2008
Ég hef bara alrei séð jafn lélega markaðssettningu, held ég væri fljótur að reka þann sem gerði þetta, þar sem þetta skaðar bara ímynd fyrirtækisins.
Flokkur: Blogg
|
Athugasemdir (2)