JOSI

Vefdagbók JOSI.IS & JOSI.NU

JOSI RSS Feed
 
 
 
 

2ja ára!

Skrifað af Anna þann 6. apríl 2008

Núna er litla Karitas Guðrún prinsessan okkar orðin 2ja ára. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt – en um leið verið alveg yndislegur og notaður til fullnustu.

Núna eru amma Úlla og afi Svenni hjá okkur svo afmælisboðið hennar varð því aðeins fjölmennara en í fyrra – og alveg voðalega vel heppnað. Auk afa og ömmu buðum við fjölskyldunni Petersen yfir til okkar í heitan rétt, súkkulaðiköku og prinsessutertu. Krakkarnir nutu samverunnar og þó mest litla skottan sem elskaði að fá að leika með stóru krökkunum – enda orðin voðalega stór og sjálfstæð að eigin mati.

Vonum að þið hafið haft það jafn gott og við í dag -

****

Innilega til hamingju með 2ja ára afmælisdaginn elsku litla prinsessan okkar og sólargeisli.
Við elskum þig svo óendanlega mikið!

Afmæliskveðja – kossar og knús,
Mamma, pabbi og Tóti bró!

Nýjar myndir og myndbönd!

Skrifað af Anna þann 2. apríl 2008

Komið nú öll blessuð og sæl –

Ég setti inn nýjar myndir á heimasíðu barnanna í gær ásamt tveimur nýjum myndböndum. Það eru líka nýlegar myndir í marsalbúminu. Ef þið viljið kíkja á myndirnar og myndböndin smellið þá hér.

Bestu kveðjur – kossar og knús,
Anna [:)]

Annar í páskum!

Skrifað af Anna þann 24. mars 2008

Sælt veri fólkið – enn og aftur gleðilega páska!

Páskarnir okkar hafa verið alveg yndislegir. Við höfum notið samverunnar með börnunum og átt voðalega rólega og notalega páskahelgi.

Það kom mér voðalega á óvart að Tóti skyldi sofa til klukkan hálf níu á páskadag. Ég hélt persónulega að hann myndi vakna fyrir allar aldir og hefja páskaeggjaleit. Hann kom sem sagt fram um hálf níu og hófst þá hin árlega leit að páskaeggjunum. Eggið hans Tóta lá inni í ofninum þetta árið en eggið hennar Karitasar ofan í stofukollinum. Karitas var voðalega róleg framan af en fór á yfirsnúning þegar hún sá páskaeggin. Ég get lofað ykkur að þó hún hafi ekki haft hugmynd hvað þetta væri – þá hefur hún fundið á sér að það væri nammi í vændum. Hún er einstaklega dugleg að finna svoleiðis á sér!
Þegar við höfum tekið nokkrar myndir settumst við að snæðingi og systkinin tóku vel á eggjunum sínum. Karitas át það mikið á stuttum tíma að hún fékk skyndilega alveg meira en nóg – og var svo hin rólegasta í nammiátinu eftir það. Tóti var hins vegar alltaf að labba að egginu sínu og næla sér í einn eða tvo bita. Þið getið séð myndir af páskaungunum okkar ef þið smellið hér. [:kiss:]

Í gærkvöldi borðuðum við svo sænska páskaskinku með öllu tilheyrandi – og mikið var þetta gott hjá okkur.
Okkur finnst pínu skondið að við skyldum hafa verið með sænskan páskamat á meðan sænsku vinir okkar voru með íslenskt lambalæri. En svona er þetta! [:o)]

Eftir hádegi í dag ætlum við svo að skella okkur á snjóþotur með vinum okkar. Keyrum út fyrir Skövde og ætlum virkilega að njóta dagsins í snjónum og sólinni – tökum með okkur einnota grill og ætlum að grilla pylsur! [:D]

Vonum að þið njótið dagsins í botn!
Hafið það sem allra best!

Kossar og knús,
Anna [:)]

Gleðilega páska!

Skrifað af Anna þann 21. mars 2008

Gleðilega páska kæru vinir og vandamenn – og hafið það nú sem allra best!

Páskakveðjur – kossar og knús,
Anna, Jósi, Tóti og Karitas

Sjúkrahúsvist!

Skrifað af Anna þann 5. mars 2008

Já, þið lásuð titilinn rétt –

Við mæðgurnar komum heim í dag eftir tveggja sólarhringa dvöl á Kärnsjukhuset í Skövde, eða KSS eins og það er kallað.
Litla greyið var lögð inn vegna vírusar sem hún hafði nælt sér í – sem samanstóð af uppköstum, niðurgangi og lystaleysi.

Sagan er þessi:
Þegar ég sá að Karitas ætlaði ekki að ná sér af ælupestinni, sem ég hélt hún væri með, þá varð ég mjög óróleg og hringdi á heilsugæsluna okkar. Þar var mér tjáð að bíða aðeins og sjá til yfir helgina – þar sem það ætti ekki að gera henni mikið. Við áttum bara að sjá til þess að hún fengi nóg að drekka. Ég varð nú frekar gáttuð það sem dóttir okkar hefur ágætis sjúkrasögu og ég vildi bara láta athuga hana. Hvað gat ég annað gert en að láta slag standa og reyna bara að halda að henni drykk.
Á sunnudeginum líst mér ekki lengur á blikuna. Við vorum farin að sprauta upp í hana orkudrykk með sprautu, þar sem hún neitaði að drekka sjálfviljug. Á sunnudagskvöldinu hringi ég á bráðamóttökuna og segi hjúkkunum þar að ég sé orðin mjög óróleg þar sem dóttir mín sé algjörlega lystarlaus og uppköstin séu ekki betri. Þegar hér er komið sögu er hún búin að vera slæm í tæpa viku. Ég fæ þau skilaboð að bíða fram á mánudagsmorgun – ég get sko sagt ykkur að ég svaf ekki dúr þá nótt.
Þegar ég hringi svo niður á barnadeild á mánudagsmorgninum gef ég þeim nákvæma lýsingu á ástandi hennar og segi þeim frá því að ég hafi reynt að fá hana skoðaða tvisvar sinnum en fengið neitun í bæði skiptin. Þegar hjúkkan heyrir þetta þá boðar hún Karitas í skoðun innan klukkustundar og þá fáum við þær fréttir að hún verði lögð inn vegna þess hversu slöpp hún er.
Við erum inni á barnadeildinni í tvo sólarhringa og litla snúllan sárlasin með næringu í æð. Ég er svo gáttuð á því hvernig hægt er að dæma veikindi barna í síma – sérstaklega þeirra sem eiga sér sjúkrasögu. Ótrúlegt alveg! [:strano:]

Núna erum við mæðgurnar samt komnar heim og skvísan allt önnur. Það mun samt taka hana nokkra daga að koma sér í fyrra horf. Hún er samt ótrúlega dugleg og fljót að ná sér – litla hetjan okkar! [:kiss:]

Eins og við höfum sagt áður þá erum við alvarlega farin að velta því fyrir okkur að kaupa einkaherbergi á spítalanum. Þeir sem þekkja okkur vita af hverju! [;)]

Setti inn nýjar myndir á síðuna þeirra!

kossar og knús,
Anna

Jóhann 29 ára í dag!

Skrifað af Anna þann 28. febrúar 2008

Innilega til hamingju með daginn elsku Jósi okkar – bara orðinn 29 ára gamall!

Við skulum reyna dekra við þig eins og við getum í dag – svona innan ákveðinna marka samt!

Elskum þig!

Anna, Tóti og Karitas

Hér fyrir neðan sjáið þið mynd af afmæliskökunni hans:

Góðar fréttir!

Skrifað af Anna þann 19. febrúar 2008

Komið nú öll blessuð og sæl – er ekki kominn tími á stutta færslu?!?!

Héðan er bara allt gott að frétta. Við hjónin fengum góðar fréttir seinni partinn í dag. Við fórum með Karitas í hjartasónar og prófessorinn frá Gautaborg, sem skoðaði hana, var voðalega ánægður með framfarirnar. Hann sagði hjartað hennar vera í það góðu lagi að við þurfum ekki að koma aftur í sónar fyrr en eftir u.þ.b. tvö ár! Við erum svo ánægð með þessar fréttir! [:D]
Hann sagði samt við okkur að hún þyrfti að koma með nokkurra ára millibili alveg fram á fullorðinsár þar sem nauðsynlegt er fylgjast með örinu á ósæðarboganum. Hann sagði að þar geti myndast önnur þrenging ef örið stækkar ekki í samræmi við hjarta og æðar. Ef það gerist þá þarf Karitas að fara í hjartaþræðingu. Við ætlum ekkert að vera hugsa um það fyrr en að því kemur – ef það verður þörf á því yfir höfuð. Við erum bara bjartsýn og vonum bara það besta.
Við fengum aðrar góðar fréttir í dag. Þar sem Karitas er alveg sjúklega hrædd við lækna og hjúkrunarfræðinga, sem er kannski ekki skrýtið, þá er búið að bjóða henni að koma í ´lekterapi´ á spítalanum. Þar vinna sérhæfðir einstaklingar sem taka mið af hverju og einu barni og hjálpa því í gegnum sín vandamál gegnum leiki og hlutverk. Þetta á vonandi eftir að hjálpa henni og við erum mjög ánægð með að spítalinn skyldi bjóði henni þessa aðstoð. Karitas á eftir að heimsækja spítala oftar en flest önnur börn og því þarf að gera henni ljóst að starfsfólk þeirra er einungis þar til að hjálpa henni.
Þetta er búinn að vera alveg voðalega góður dagur! [:D]

****
Yfir í annað:
Hérna er ekki búinn að vera nokkur einasti vetur – aðeins verið snjór á jörðu í rétt rúma viku. Síðustu daga hefur verið sannkallað vorveður. Það eru farnar að kíkja upp páskaliljur og túlípanar úr jörðu – ásamt því að tré eru farin að bruma. Mér finnst við hafa verið svikin þar sem ég hefði gjarnan viljað smá vetur – en fyrst hann hefur ekki látið sjá sig þá má vorið bara taka við. Bring it on!

Læt þetta duga í bili …

Kossar og knús,
Anna [:)]

Back to the Future

Skrifað af Josi þann 11. febrúar 2008

Fékk þessa mynd á maili í dag og bara varð að setja hana hérna inn (þvílíkt flahsback!!!!).

Maður var þvílíkur töffari!!!![8D] [:yeah:]

Mafía Vestmannaeya

29 ára gömul!

Skrifað af Josi þann 29. janúar 2008

Jæja þá er konan mín orðin 29 ára gömul. Mér líður bara eins og unglambi í dag þar sem ég er ennþá bara 28 ára! [:)]

En allanvega til hamingju með daginn Anna mín.

Kveðja
JOSI

Slubb & slef ehf.

Skrifað af Anna þann 16. janúar 2008

Hvað er þetta með hræðslu sænskra leikskólakennara við smá hor eða er það kannski eitthvað annað sem er að pirra þær?
Fóstrurnar hringdu í mig í gærmorgun og báðu mig að taka hana Karitas heim þar sem hún var ekki alveg hún sjálf. Þegar ég kom og sótti hana kom dóttir mín haupandi á móti mér með bros á vör. Ég gat ekki betur séð en það væri í góðu lagi með hana fyrir utan smá hor í nös. Hún lagði sig fljótlega eftir að við komum heim og var svo bara hin hressasta. Ég verð að viðurkenna að ég er bara svolítið sár út í fóstrurnar – mig grunar að þær séu að notað sér það að ég er heima að læra. Þær hafa kannski hugsað sér gott til glóðarinnar þar sem þær eru með tvo nýja stráka í aðlögun.

Ég ákvað að hafa hana heima í dag þar sem hún er ennþá með hor en er enn þokkalega hress. Ég tók þessa ákvörðun þar sem ég hefði örugglega fengið símhringingu þar sem hún er ekki alveg hún sjálf – og þar sem strákarnir eru líka ennþá í aðlöguninni.
Ég ætla að láta í mér heyra á morgun þegar ég fer með hana – því get ég lofað ykkur. Þær verða að skilja að það er ekki hægt að læra með svona hresst barn heima!
Fyrirgefið en ég varð bara að pústa smá … hef svo sem gert það áður og það bitnaði líka á ykkur. [:strano:]

****

Fyrir utan þetta er bara allt gott að frétta. Við áttum alveg voðalega fína helgi. Á laugardaginn skelltum við okkur til Gautaborgar á sýninguna Disney On Ice. Þetta var alveg rosalega skemmtileg sýning, sem sló í gegn bæði hjá börnum og fullorðnum. Á sunnudaginn buðum við svo bekknum hans Tóta til okkar. Afmælisveislan heppnaðist alveg rosalega vel og Tóti var þvílíkt hamingjusamur með daginn.
Þið getið séð myndir frá bæði Gautaborgarferðinni og afmælinu hans Tóta á heimasíðu barnannna – smellið hér.

Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili …

Bestu kveðjur – kossar og knús,
Anna [:)]

 

maí 2012
Þ Mi Fi L S
« jan.    
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031  

Switch to our mobile site