Verið öll hjartanlega velkomin á JOSI.IS -
Við heitum Jóhann Sigurður Þórarinsson, fæddur 28. febrúar 1979, og Anna Ýr Sveinsdóttir, fædd 29. janúar 1979.
Við eigum tvö yndisleg börn. Þórarinn Sigurður, Tóti, er fæddur 8. janúar 2001 og Karitas Guðrún er fædd 6. apríl 2006.
Við erum búsett í Svíþjóð, nánar tiltekið í Skövde, síðan í ágúst 2003. Skövde er lítill háskólabær í Västra Götaland. Það fer voðalega vel um okkur hérna og börnin eru ánægð í skóla og leikskóla.
Heimilisfangið okkar er: Solskensvägen 9 / 541 78 Värsås /Sverige .
****
Myndirnar, sem birtast fyrir ofan bloggið, tókum við á hringferð okkar um Ísland sumarið 2008. Þetta eru brot úr tíu ljósmyndum, sem birtast handahófskennt.
Við vonum að þið njótið bloggsins og myndanna.
Hafið það alltaf sem allra best!
Jóhann og Anna